ASÍ vill sjá hlutabótaleiðina framlengda fram á næsta sumar

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur að rétt væri að framlengja hlutabótaleiðina fram á næsta sumar, í ljósi óvissunnar á vinnumarkaði. Miðstjórnin leggur einnig til að atvinnuleysistryggingatímabilið verði lengt í þrjú ár að nýju.

1. maí 2019 - ASÍ
Auglýsing

Alþýðu­sam­band Íslands leggur til að grunnatvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar um 9,9 pró­sent upp í 318.250 kr., tekju­tengdar bætur verði greiddar í sex mán­uði frá fyrsta degi atvinnu­leysis og að þak þeirra verði hækkað upp í 650.000 kr. á mán­uði, auk þess sem þak tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta verði hækkað þannig að fyrri tekjur upp að dag­vinnu­tekju­trygg­ingu, sem í dag nemur 335.000 kr., skerði ekki tekju­tengdar atvinnu­leys­is­bæt­ur. 

Þá leggur ASÍ til að hluta­bóta­leiðin verði fram­lengd í núver­andi mynd fram á næsta sumar og að leng­ing bóta­réttar verði lengdur um hálft ár, úr 30 mán­uðum og upp í 36 mán­uð­i. 

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í sam­þykkt frá mið­stjórn ASÍ, en þar segir að við þær aðstæður sem nú eru á vinnu­mark­aði sé brýnna sem aldrei fyrr að gera umbætur á atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­inu. Forða þurfi fólki sem misst hefur vinn­una frá enn verri áföllum en felist í atvinnu­missi með því að tryggja afkomu­ör­yggi þess og aðstoða fólk við að kom­ast aftur út á vinnu­mark­að­inn. 

Auglýsing

ASÍ leggur einnig til að fjár­magn til vinnu­mark­aðs­að­gerða verði tryggt í fjár­mála­á­ætl­un, svo halda megi úti vinnu­mark­aðs­að­gerðum með þjón­ustu, stuðn­ingi og námstæki­færum fyrir atvinnu­leit­endur og sömu­leiðis að lög um atvinnu­leys­is­trygg­ingar verði end­ur­skoðuð til að mæta betur mögu­leikum atvinnu­leit­enda til að nýta námsúr­ræði og önnur virkni­úr­ræði sem eru í boði og styrkja stöðu sína á vinnu­mark­aði.

Hvergi hafi gengið að „svelta fólk út af bót­um“

„At­vinnu­þátt­taka er mjög há á Íslandi og atvinnu­leysi alla jafna lágt. Engu að síður eru at­vinnu­leys­is­trygg­ingar hér hærri en víða ann­ars stað­ar. Þetta afsannar þá lífs­seigu kenn­ing­u að atvinnu­leys­is­trygg­ingar séu letj­andi til atvinnu­leit­ar. Hvergi í heim­inum hefur sú aðferð að svelta fólk út af bótum skilað árangri,“ segir í sam­þykkt mið­stjórnar ASÍ, en þar segir einnig að skortur á afkomu­ör­yggi geti verið mjög dýr­keyptur sam­fé­lags­lega. 

„Tekju­fall ein­stak­linga hefur dómínó-á­hrif á hag­kerfið í heild sinni og getur leitt til þess að kreppan vegna COVID-19 verður dýpri og lang­vinn­ari en ella,“ segir í sam­þykkt mið­stjórn­ar­inn­ar.

Reikna má með að tek­ist verði á um atvinn­u­­leys­is­­trygg­inga­­kerfið á vett­vangi stjórn­­­mál­anna á næst­unni, en ­Bjarni Bene­dikts­­son fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði meðal ann­ars í við­tali í Kast­­ljósi í gær­­kvöldi að honum hugn­að­ist ekki að ráð­­ast í þá hækkun grunnatvinn­u­­leys­is­­bóta sem verka­lýðs­hreyf­­ingin hefur farið fram á. Frekar kæmi til greina í hans huga að fram­­lengja tíma­bundið tekju­teng­ing­­ar­­tíma­bil atvinn­u­­leys­is­­bót­anna, sem er í dag þrír mán­uð­­ir. For­svars­menn ASÍ hafa í dag lýst yfir von­brigðum með þessi orð ráð­herra.

Guð­rún John­sen hag­fræð­ingur og efna­hags­ráð­gjafi VR fjall­aði um atvinnu­leys­is­bætur í erindi sínu á sam­ráðs­fundi stjórn­valda um lífið með veirunni fyrr í dag. Þar sagði hún að rann­sóknir sýndu að hóf­legar hækk­anir atvinnu­leys­is­bóta hefðu engin áhrif á atvinnu­leysi, þar sem atvinnu­leys­is­trygg­ingar væru tíma­bundn­ar.

Í minn­is­blaði um til­lögur ASÍ segir að atvinnu­leysi hafi þegar verið vax­andi áður en heims­far­ald­ur­inn skall á og að aukin hætta sé á lang­tíma­at­vinnu­leysi nú. Því sé rétt að bæði hækka bæt­urn­ar, lengja tekju­teng­ing­ar­tíma­bil­ið, minnka skerð­ingar og lengja bóta­tíma­bilið aftur í 36 mán­uði, en það var stytt niður í 30 mán­uði árið 2015.

„Mikil óvissa ríkir í atvinnu­líf­inu og ákveðnar atvinnu­greinar eru nán­ast óstarf­hæf­ar. Ekki er hægt að segja við fólk að leggja harðar að sér í atvinnu­leit við slíkar aðstæð­ur, þegar engin störf er að hafa,“ segir í minn­is­blaði mið­stjórnar ASÍ.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent