„Gríðarleg dómínóáhrif af einu smiti“

Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að ef fólk treysti sér ekki til þess að vera í ákveðnum aðstæðum þá sé best að það komi sér út úr þeim. Það eigi ekki að bjóða sér upp á aðstæður þar sem tveggja metra reglan sé ekki virt.

Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Auglýsing

„Eins og alltaf er verið að hamra á mik­il­vægi þess að hver og einn sinni per­sónu­legri smit­gát þá er aldrei of oft komið inn á það og ekki gleyma því að þeir sem hafa verið að veikj­ast er fólk sem hefur talið sig vera í öruggum aðstæðum – og það hefur ekk­ert verið í umhverf­inu sem gefur til kynna að COVID sé á næsta leiti eða kór­ónu­veir­an.“

Þetta sagði Rögn­valdur Ólafs­son aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hann benti enn fremur á að sjá mætti gríð­ar­leg dómínóá­hrif af einu smiti, bæði í því hversu margir væru að smit­ast og færu í sótt­kví.

Sex ný kór­ón­u­veirusmit greindust inn­­an­lands í gær, öll hjá sýkla- og veiru­fræð­i­­deild sem greindi alls 291 sýni. Hlut­­fall jákvæðra sýna var því rétt rúm­­lega tvö pró­­sent. Fimm af þeim sem greindust með kór­ón­u­veiruna í gær voru í sótt­­­kví. Í ein­angrun eru nú 117 en voru 115 í gær. ­Fjöldi ein­stak­l­inga í sótt­­­kví er nú 919 en í gær voru 850 í sótt­­­kví. Einn ein­stak­l­ingur liggur á sjúkra­­húsi líkt og í gær, þó ekki á gjör­­gæslu.

Auglýsing

„Lög­reglan er að sinna eft­ir­liti með þessu á opin­berum stöðum og það er verið að passa upp á að fólk sinni smit­gát­inni og að tveir metr­arnir séu í boði. En þegar öllu er á botn­inn hvolft þá eru það alltaf við sjálf sem höfum ákveð­inn atkvæð­is­rétt í þessu með því að láta ekki bjóða okkur upp á að vera í aðstæðum sem okkur eru ekki tryggðir þessir tveir metrar og þetta pláss sem við teljum okkur þurfa að hafa,“ sagði Rögn­valdur á fund­in­um.

Þá væri best að fara úr aðstæð­unum ef fólk treystir sér ekki til þess að vera í þeim. Hann árétt­aði að veiran væri alls staðar á sveimi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent