Heimavellir fara fram á afskráningu úr Kauphöll í annað sinn á rúmu ári

Búið er að senda erindi til Kauphallar Íslands um að leigufélagið Heimavellir verði afskráð úr henni. Einn hluthafi, norskt félag, á nú 99,45 prósent í Heimavöllum.

Heimavellir voru skráðir í Kauphöll Íslands vorið 2018. Nú virðast dagar þess sem skráðs félags vera taldir.
Heimavellir voru skráðir í Kauphöll Íslands vorið 2018. Nú virðast dagar þess sem skráðs félags vera taldir.
Auglýsing

Heima­vellir hf. hafa farið fram á það við Kaup­höll Íslands að skráð hluta­bréf í félag­inu verði tekin úr við­skiptum sam­kvæmt erindi sem sent var á Kaup­höll­ina fyrr í dag, þann 25. ágúst 2020.

Norska félagið Fredens­borg AS gerði yfir­­­tökutil­­boð í Heima­velli í mars og þegar því lauk átti félagið 99,45 pró­sent í Heima­völlum þegar búið var að leið­rétta fyrir eigin hlut­u­m. 

Verðið var 1,5 krónur á hlut og því hljóð­aði yfir­­­tökutil­­boðið í heild sinni upp á 17 millj­­arða króna. Alls tóku 242 hlut­hafar til­boð­inu. Í kjöl­farið var inn­lausn­ar­rétti beitt þar sem verðið var hið sama og bauðst í yfir­tökutil­boð­inu, eða 1,5 krón­ur. 

Heima­vellir er stærsta einka­rekna leigu­fé­lag lands­ins með um tvö þús­und íbúðir í rekstri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Akra­nesi, Borg­ar­nesi, Ísa­firði, Akur­eyri, Egils­stöð­um, Reyð­ar­firði, Sel­fossi, í Hvera­gerði, Þor­láks­höfn, Grinda­vík og Reykja­nes­bæ.

Reyndu að afskrá félagið í fyrra

Lyk­il­hlut­hafar Heima­valla reyndu að afskrá félagið í fyrra eftir að illa gekk að fá stóra fag­fjár­­­­­­­­­festa á borð við líf­eyr­is­­­­­sjóði til að fjár­­­­­­­­­festa í því og eftir að félag­inu mistókst að end­­­­­ur­fjár­­­­­­­­­magna sig í takti við fyrri áætl­­­­­­­­­anir sem áttu að losa það undan arð­greiðslu­höml­u­m. 

Auglýsing
Kaup­höll Íslands hafn­aði þeim til­­­­­raunum og þess í stað fóru helstu hlut­hafar Heima­valla í þá veg­­­­­ferð að selja eignir með það mark­mið að skila arð­inum af þeim til hlut­hafa. Sam­hliða var haldið áfram, með umtals­verðum árangri, að leita að end­­­­ur­fjár­­­­­­­mögnun fyrir lánin sem mein­uðu útgreiðslu á arði.

Marka­virði Heima­valla er í dag er 16,4 millj­­­­­­arðar króna og hækk­aði umtals­vert framan af ári.  

Eigið fé félags­­­­­­ins, mun­­­­­­ur­inn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða rúm­­lega 20 millj­­­­­­arðar króna miðað við síð­­­­­asta birta upp­­­­­­­­­gjör. 

Í októ­ber í fyrra hófu Heima­vellir umfangs­­­­mikla áætlun um end­­­­ur­­­­kaup á eigin bréf­­um.

Heima­vellir töp­uðu 476 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Eigið fé félags­ins var 19,5 millj­arðar króna í lok júní­mán­að­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent