Faraldurinn kosti sveitarfélög landsins 33 milljarða í ár

Áætlað er að rekstrarniðurstaða sveitarfélaga verði um 26,6 milljörðum lakari í ár heldur en gert var ráð fyrir í upphaflegum fjárhagsáætlunum samkvæmt skýrslu starfshóps um fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Auknar fjárfestingar ársins nema 6,6 milljörðum.

img_5063_raw_0710130620_10191554925_o.jpg
Auglýsing

Áætlað er að nei­kvæð áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á fjár­hags­stöðu íslenskra sveit­ar­fé­laga muni nema rúmum 33 millj­örðum á þessu ári. Til að setja þær tölur í sam­hengi námu heild­ar­út­gjöld sveit­ar­fé­laga á síð­asta ári alls 390 millj­örðum króna. Hin nei­kvæðu áhrif nemi þar af leið­andi um 8,5 pró­sentum af heild­ar­út­gjöldum sveit­ar­fé­lag­anna. Þetta er nið­ur­staða skýrslu starfs­hóps um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga sem kynnt var í vik­unni.



„Ljóst er að Covid-19 far­ald­ur­inn hefur haft og mun hafa tölu­verð áhrif á fjár­mál sveit­ar­fé­laga en áhrifin eru mjög ólík eftir sveit­ar­fé­lögum og lands­hlut­um. Almennt má segja að áhrif Covid-19 far­ald­urs­ins séu hlut­falls­lega mest þar sem umfang ferða­þjón­ustu er hlut­falls­lega stærst og þar sem ætla má að útgjöld vegna félags­legrar þjón­ustu og fjár­hags­að­stoðar vegur þyngst,“ segir í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unn­ar.



Þannig sé mörgum sveit­ar­fé­lögum þröngur stakkur snið­inn hvað varðar við­brögð við ástand­inu, eins og það er orðað í skýrsl­unni. Reyna muni á fram­lög þeirra sveit­ar­fé­laga vegna lög­bund­inna verk­efna, svo sem í vel­ferð­ar- og skóla­mál­um.

Auglýsing



Rekst­ar­nið­ur­staða versni um tæpa 27 millj­arða

Í skýrsl­unni kemur fram að áætluð rekstr­ar­nið­ur­staða sveit­ar­fé­lag­anna verði 26,6 millj­örðum lak­ari á árinu heldur en gert var ráð fyrir í fjár­hags­á­ætl­unum þeirra. Þá er gert ráð fyrir að fjár­fest­ingar sveit­ar­fé­lag­anna verði um 6,6 millj­örðum meiri í ár heldur en upp­haf­lega var gert ráð fyr­ir. Sam­an­lagt eru frá­vik frá upp­haf­legum fjár­hags­á­ætl­unum því 33 millj­arðar eða um 91 þús­und krónur á hvern íbúa að með­al­tali. 



Áætlað er að útsvars­tekjur sveit­ar­fé­lag­anna muni drag­ast saman um um það bil níu millj­arða. Í upp­haf­legum fjár­hags­á­ætl­unum var gert ráð fyrir að útsvars­tekjur árs­ins myndu nema rúm­lega 223 millj­örðum króna en sam­kvæmt þeim gögnum sem nú liggja fyrir áætlar starfs­hóp­ur­inn að útsvars­tekjur árs­ins muni nema 212 millj­örðum króna. Útsvars­tekjur eru stærsti ein­staki tekju­stofn sveit­ar­fé­laga.



Það er þó mjög mis­jafnt hversu mik­ill hall­inn er hjá hverju sveit­ar­fé­lagi fyrir sig, til að mynda er gert ráð fyrir að tekjur á íbúa verði hærri en áætl­anir gerðu ráð fyrir í alls tólf sveit­ar­fé­lög­um. 



Fjár­magna hall­ann að miklu leyti með lánum

Sam­kvæmt áætl­unum sveit­ar­fé­lag­anna sem vísað er í í skýrsl­unni þá munu sveit­ar­fé­lögin fjár­magna auk­inn halla ann­ars vegar með auknum lán­tökum upp á 23 millj­arða og hins vegar með því að ganga á hand­bært fé upp á rúma tíu millj­arða. 



Um gerð skýrsl­unnar segir að gögnum um fjár­mál sveit­ar­fé­laga hafi verið safnað úr árs­reikn­ingum þeirra auk þess sem upp­lýs­inga var leitað frá Rík­is­skatt­stjóra, Hag­stofu Íslands, og Vinnu­mála­stofn­un­ar. Þá var sveit­ar­fé­lögum send beiðni um fjár­mála­upp­lýs­ingar úr bók­haldi þeirra frá síð­ustu mán­uð­um.



Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi þann 28. apríl síð­ast­lið­inn að beina því til sam­ráðs­nefndar ríkis og sveit­ar­fé­laga að setja á fót grein­ing­ar­hóp til meta fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga. For­maður starfs­hóps­ins var dr. Gunnar Har­alds­son, hag­fræð­ing­ur, sem skip­aður var án til­nefn­ing­ar. Í starfs­hópnum sátu einnig Dan Brynjars­son, sviðs­stjóri fjár­sýslu­sviðs Akur­eyr­ar­bæjar og Hall­dóra Kára­dótt­ir, sviðs­stjóri fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, fyrir Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga, Hanna Dóra Hólm Más­dóttir fyrir sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­ið, Krist­inn Bjarna­son fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Pétur Berg Matth­í­as­son fyrir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent