Lítill sem enginn þjónustuafgangur við útlönd

Hrun í ferðaþjónustu og farþegaflutningum hefur leitt til þess að útflutningur þjónustu er nær sá sami og innflutningur hennar í fyrsta skipti í 12 ár.

Minna var um erlenda ferðamenn hér á landinu í vor.
Minna var um erlenda ferðamenn hér á landinu í vor.
Auglýsing

Afgangur af þjón­ustu­jöfn­uði Íslands við önnur lönd dróst saman um 93 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs miðað við árið á und­an. Hann nemur nú 3,7 millj­örðum króna og hefur ekki verið minni síðan í árs­byrjun 2008. Þetta kemur fram í bráða­birgð­ar­tölum Hag­stofu

Breyt­ingin er til­komin vegna gríð­ar­mik­ils sam­dráttar á útflutn­ingi þjón­ustu á öðrum árs­fjórð­ungi, en hann minnk­aði um nær 100 millj­arða króna miðað við sama tíma­bil í fyrra. Einnig var nokkur sam­dráttur á inn­flutn­ingi þjón­ustu á sama tíma, en hann nam þó ein­ungis 50 millj­örðum króna.

Nær allan sam­drátt­inn í þjón­ustu­út­flutn­ingi má rekja til hruns í ferða­þjón­ustu og far­þega­flutn­ing­um. Alls dróst fram­leiðslan í ferða­þjón­ust­unni við útlönd um tæpa 75 millj­arða króna, á meðan far­þega­flutn­ingar til lands­ins dróg­ust saman að and­virði 30 millj­arða króna. Sömu­leiðis má að mestu leyti rekja sam­drátt­inn í þjón­ustu­inn­flutn­ingi til fækk­unar íslenskra ferða­manna erlend­is. 

Auglýsing

Mesta fækk­unin frá Banda­ríkj­unum

Mest fækk­aði ferða­mönnum frá Banda­ríkj­un­um, en þjón­ustu­út­flutn­ingur þangað dróst saman um rúma 10 millj­arða króna. Þar á eftir kemur Kana­da, þar sem útflutn­ing­ur­inn dróst saman um 1,4 millj­arða og svo Bret­land, þar sem sam­drátt­ur­inn nam 880 millj­ónum á öðrum árs­fjórð­ung­i. 

Hlut­falls­lega fækk­aði þó ferða­mönnum mest frá Evr­ópu­lönd­unum þar sem strangt útgöngu­bann var í gildi á þessum tíma, eða Spáni, Ítalíu og Frakk­land, en sam­drátt­ur­inn í þjón­ustu­út­flutn­ingi til þeirra landa nam allt að 90 pró­sent­u­m. 

Þjónustujöfnuður Íslands við önnur lönd. Heimild: Hagstofa.

Líkt og myndin hér að ofan sýnir hefur þjón­ustu­jöfn­uður Íslands við önnur lönd verið jákvæður allt frá árinu 2008, sem þýðir að við höfum flutt meiri þjón­ustu út úr land­inu heldur en inn í það. Þar hefur upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar vegið mest, líkt og sést í stórum árs­tíða­sveifl­u­m. 

Á öðrum árs­fjórð­ungi nam afgang­ur­inn af þjón­ustu­jöfn­uð­inum svo 3,7 millj­örð­um, en það eru ein­ungis þrjú pró­sent af hámarks­af­gangi lands­ins sem náð­ist á þriðja fjórð­ungi árs­ins 2018.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent