Víðir: „Við ætlum að ná þessu niður“

Víðir Reynisson var einlægur en ákveðinn á upplýsingafundi dagsins, þeim fyrsta eftir verulega hertar aðgerðir á samkomum. „Veiran er andstæðingurinn og hún er hvorki fyrirsjáanleg né sanngjörn,“ sagði hann.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Auglýsing

„Við höfum ekki lent í því að fólk sé bein­línis að reyna að leiða okkur á rangan veg heldur frekar það að það gefi ekki allar upp­lýs­ing­ar,“  segir Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, um áskor­anir sem upp hafa komið við smitrakn­ingu að und­an­förnu. Hann segir umræðu um þessi mál um helg­ina hafa orðið til þess að fólk hefur haft sam­band, leið­rétt og bætt við upp­lýs­ingum sem það hafði áður gefið smitrakn­ing­arteym­inu. „Ég held að menn hafi áttað sig á mik­il­vægi þess að taka þátt í þessu verk­efni og ég hef ekki áhyggjur af að þetta verði vanda­mál héðan í frá.“

Víðir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að ekki væri rétt að lög­reglan hefði fengið aðgang að greiðslu­korta­færslum við­skipta­vina á vín­veit­inga­stöðum til að rekja hópsmit. Hins vegar hafi í þremur til­fell­um, þar sem margt fólk hafði komið á staði þar sem smit kom upp, var óskað eftir því að rekstr­ar­að­ilar myndu kanna hvort þeir gætu og mættu gefa upp ákveðnar upp­lýs­ingar um við­skipta­vini svo hægt yrði að koma til þeirra upp­lýs­ing­um. Nið­ur­staðan var sú að sam­eig­in­leg beiðni rekstr­ar­að­ila og almanna­varna (sótt­varna­lækn­is) var send til korta­fyr­ir­tækja um að fá síma­númer fólks­ins sem var á stöð­unum til að geta boðað það í skim­un. Korta­fyr­ir­tækin skoð­uðu málið og töldu sér heim­ilt að gera það. „Þannig að við fengum núm­er­a­lista og við­kom­andi aðilar fengu send boð um skimun,“ sagði Víð­ir. „Þannig not­uðum við þessar upp­lýs­ingar og töldum það í lagi að gera það með þessum hætti.“ Engin nöfn hafi fylgt.

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir ítrek­aði að þær upp­lýs­ingar sem út úr þess­ari skoðun komu eru á ábyrgð sótt­varna­lækn­is, lög­reglan hefur þær ekki. „Þetta eru eins og aðrar upp­lýs­ingar sem safnað er vegna COVID, þær eru í gagna­grunnum sótt­varna­lækn­is­.“ 

Auglýsing

Víðir sagð­ist skilja mjög vel að fólki þætti óþægi­legt að segja hvað það hafi verið að gera og hverja það hafi verið að hitta. „Alls konar hugs­anir um það hvort við hefðum átt að gera hlut­ina með ein­hverjum öðrum hætt­i,“ sagði hann en bætti svo við: „Ekki vera að eyða tíma í það. Hjálpið okkur bara að vinna í þessu. Hjálp­umst að við að finna þau sem gætu hugs­an­lega hafa smit­ast og tryggjum að þau geti fengið upp­lýs­ingar til að geta tekið ákvörðun um sínar varn­ir, sér og sínum til hags­bóta.“

Eftir þessa brýn­ingu tal­aði Víðir beint til þjóð­ar­innar í lok fundar dags­ins. „Við erum núna í stöðu sem við vildum gjarnan hafa sloppið við að vera í. Við breytum ekki því sem hefur orðið en við getum ráðið því hvert fram­haldið verð­ur.

Það mun taka okkur næstu daga að aðlaga okkur að þessum nýju regl­um. Við þurfum að vera umburð­ar­lynd þangað til það ger­ist. 

Það er bara ein leið áfram í þessu og það er sam­staða. Við þurfum að taka hvert ein­asta mál og hvert ein­asta verk­efni í þessu og tækla það af skyn­semi. Við þurfum að horfa á þetta í litum skrefum og taka hvert verk­efni og sigra það.“

Hann fór svo yfir mik­il­vægi per­sónu­legra smit­varna og hvatti alla til að gæta vel að sér hvað varðar hand­þvott, sótt­hreinsun sam­eig­in­legra snertiflata og þar fram eftir göt­un­um. 

„Við þurfum að halda áfram að vernda við­kvæma, hringja í þá sem eru ein­ir, gera eitt­hvað skemmti­legt fyrir þá sem kom­ast ekki út. Það reynir á þol og þraut­seigju núna. Ekk­ert er hafið yfir gagn­rýni en munum heild­ar­mark­miðið sem er eins og við vitum að tak­marka eins og við getum frek­ari útbreiðslu. Veiran er and­stæð­ing­ur­inn,“ sagði Víðir og lagði áherslu á orð sín með því að hamra með fingrum á púltið fyrir framan sig. „Hún er ekki fyr­ir­sjá­an­leg og hún er ekki sann­gjörn. Við hins vegar höfum sýnt að við getum ALLT þegar við stöndum sam­an. Við ætlum að ná þessu nið­ur,“ sagði Víðir og hélt áfram að leggja mikla áherslu á orð sín. „Við munum vinna marga bar­daga og litlir sigrar skapa mikla vel­gengni. Tökum einn dag í einu, hjálp­umst að. Leið­bein­um, pössum upp á hvert annað og sýnum öðrum vin­semd og virð­ing­u. 

Þetta verður áfram í okkar hönd­um.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent