Íbúar á höfuðborgarsvæðinu haldi sig heima við eins og hægt er

Ríkislögreglustjóri mun gefa frá sér hert tilmæli til þess að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er minnisblað um hertrar sóttvarnarreglur í vinnslu hjá sóttvarnarlækni.

Víðir Reynisson
Víðir Reynisson
Auglýsing

Sótt­varn­ar­læknir mun leggja til hertra aðgerða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gegn útbreiðslu kór­ónu­veirunn­ar, auk þess sem rík­is­lög­reglu­stjóri mun senda frá sér til­mæli um hertar ein­stak­lings­bundnar sótt­varn­ar­að­gerð­ir. Til­mælin snúa að því að tak­marka ýmsa hópa­myndun auk þess sem hvatt er til þess að öllum við­burðum verði frestað næstu tvær vik­ur.

Þetta kom fyrst fram í við­tali hjá RÚV við Víði Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjón almanna­varn­ar­deild­ar, fyrr í dag. Í því segir Víðir ekki til um hve mikið af þeim til­mælum muni rata inn í minn­is­blað sótt­varn­ar­læknis sem regl­ur.

Rík­is­lög­reglu­stjóri mælist til þess að íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins:

Auglýsing

  • Veri eins mikið heima­við og hægt er
  • Veri ekki á ferð­inni til eða frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu meira en nauð­syn­legt er
  • Tak­marki fjölda í búð­um, þannig að helst einn úr fjöl­skyldu fari
  • Tak­marki enn frekar heim­sóknir til við­kvæmra hópa
  • Fresti öllum við­burðum næstu tvær vik­urnar
  • Geri hlé á starf­semi hvers kyns íþrótta-, tóm­stunda- og úti­vist­ar­hópa
  • Sleppi því að fara í sund nema ef þeir þurfa heilsu sinnar vegna
  • Tryggi að allir staðir og versl­anir sem opnir eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tryggi fjölda­tak­mark­anir eins vel og unnt er sem og hand­spritt fyrir alla.

Víðir segir það einnig vera til athug­unar að gera hlé á íþrótta­starfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu næstu tvær vik­ur. 

Farið verður yfir til­mælin nánar á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna klukkan þrjú í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent