Ekki til þess fallið að efla samstöðu að leyfa fótbolta en banna annað

Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar gagnrýndu ósamræmi varðandi íþróttaiðkun í hertum reglum á höfuðborgarsvæðinu í umræðum um störf þingsins í morgun. Hanna Katrín Friðriksson segir að það verði að vera „system i galskapet“ – samræmi í vitleysunni.

Fótbolti og aðrar utanhússíþróttir eru leyfilegar á höfuðborgarsvæðinu, en innanhússíþróttir ekki.
Fótbolti og aðrar utanhússíþróttir eru leyfilegar á höfuðborgarsvæðinu, en innanhússíþróttir ekki.
Auglýsing

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar og Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar gagn­rýna báðar þá ákvörðun heil­brigð­is­ráð­herra að víkja að hluta frá ráð­legg­ingum sem komu fram í minn­is­blaði sótt­varna­læknis varð­andi íþrótta­iðkun, í þeirri reglu­gerð um hertar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem kynnt var í gær­kvöldi. Gagn­rýni þing­mann­anna kom fram í umræðum um störf þings­ins á Alþingi í morg­un­.

Sam­kvæmt regl­unum sem tóku gildi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag er lík­am­rækt og íþrótta­starf inn­an­dyra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu óheim­ilt inn­an­dyra, en íþróttir eru heim­ilar utandyra, þar á meðal fót­bolti. Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis um hertar aðgerðir var hins vegar mælt með því að öllu keppn­i­starfi í íþróttum yrði frestað um 2 vik­ur. Eftir því var ekki farið hvað íþróttir utandyra varð­ar.

„Í stuttu máli, til þess að flækja þetta ekki frekar, er fót­bolti leyfður og ekki aðrar íþrótta­grein­ar. Mun­ur­inn er sagður vera að fót­bolti er stund­aður utandyra, aðrar inn­an­dyra, samt er sundið bannað – og svona mætti lengi telja.  Þetta er ekki til þess fallið að efla sam­stöðu þjóðar sem fyrst og fremst þarf á sam­stöðu að halda til þess að kom­ast í gegnum þetta,“ sagði Hanna Katrín. Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar.



Hún sagð­ist bíða spennt eftir því að sjá hvernig heil­brigð­is­ráðu­neytið myndi taka í óskir íþrótta­hreyf­inga sem alla jafna stunda íþróttir sínar inn­an­húss, um að fá að leika íþróttir sínar utandyra.

Auglýsing

„Það verður að vera eitt­hvað „sy­stem i gal­skapet“ (í. sam­ræmi í vit­leys­unni) en ekki handa­hófs­kenndar ákvarð­anir þegar þær varða hags­muni jafn margra og við verðum að treysta því að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi ein­hverja reglu á hlut­unum en séu ekki bara hlaupa á eftir þeim sem kalla hæst hverju sinn­i,“ sagði Hanna Katrín.

Mega leik­menn sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu spila körfu með Njarð­vík?

Helga Vala sagði að „óreiða í upp­lýs­ing­um“ væri algört lyk­il­mein í sam­stöðu þjóð­ar­inn­ar. Hún sagði að ólíkar reglur fyrir ólík land­svæði – eða ólíkar reglur fyrir ólíkar íþrótta­greinar – vektu upp tor­tryggni í garð þeirra aðgerða sem gripið er til. 

Svörin sem lík­ams­rækt­ar­fröm­uðir á Akur­eyri hefðu fengið um helg­ina, þegar þeir gagn­rýndu að þurfa að loka hjá sér þar sem það væri lítið smit, hefðu verið þau að það dug­aði lítt að loka bara á einum stað en ekki öðr­um.

Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar.



Hún sagði að íþrótta­fé­lög í dag væru hugsi yfir þeim skila­boðum sem borist hafa, því nú megi ekki leika inn­an­húss­í­þróttir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þeir sem stunda slíkar í Kefla­vík, Borg­ar­nesi, Njarð­vík og Grinda­vík megi áfram stunda sínar íþrótt­ir, „al­gjör­lega óháð því hvar íþrótta­fólkið býr sem spilar með umræddum félög­um.“



„Þetta fær mig til að vera aðeins hugsi um hvort við séum að lenda í upp­lýs­inga­óreiðu eða reglu­óreiðu og ég held að stjórn­völd verði að grípa þarna inn í og láta skyn­sem­ina taka yfir en ekki póst­núm­er,“ sagði Helga Vala.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent