Býst við að Landspítali fari af neyðarstigi í vikunni

Forstjóri Landspítala býst við að spítalinn geti farið af neyðarstigi niður á hættustig í vikunni, sem þýðir að aftur verður hægt að framkvæma valkvæðar aðgerðir á spítalanum. Skýrsla um hópsýkingu á Landakoti gæti verið kynnt almenningi fyrir vikulok.

Páll Matthíasson forstjóri Landspítala á fundinum í dag.
Páll Matthíasson forstjóri Landspítala á fundinum í dag.
Auglýsing

Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­ala segir að hann búist við því spít­al­inn verði færður af neyð­ar­stigi og niður á hættu­stig á allra næstu dög­um. 

Það þýðir að aftur verður hægt að fram­kvæma svo­kall­aðar val­kvæðar aðgerðir á spít­al­an­um, en þurft hefur að fresta mörg hund­ruð aðgerðum frá því að spít­al­inn var settur á neyð­ar­stig eftir að hópsmit kom upp á Landa­koti.

Þetta kom fram í máli for­stjór­ans á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Sextán ein­stak­lingar greindust með COVID-19 í gær og þar af voru ein­ungis tveir utan sótt­kví­ar. 

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að þessum tölum þyrfti að taka með fyr­ir­vara, þar sem færri sýni væru tekin um helgar en virka daga, en þó væri ljóst að inn­an­lands­smitum héldi áfram að fækka hægt og bít­andi og það bæri að þakka góðri þátt­töku almenn­ings í sótt­varn­ar­að­gerð­um.

Auglýsing

Fimm ein­stak­lingar lét­ust vegna COVID-19 um helg­ina. Í öllum til­fellum var um að ræða eldra fólk, sem smit­að­ist í tengslum við hóp­sýk­ing­una á Landa­koti. Fram kom í máli for­stjóra Land­spít­ala að sjötta and­látið hjá ein­stak­lingi í þessum hópi sjúk­linga væri yfir­vof­and­i.

„Ég vil fyrir hönd alls starfs­fólks Land­spít­ala segja að hugur okkar er hjá aðstand­endum þessa fólks, sem veiran hefur nú lagt af velli,“ sagði Páll.

Skýrsla um Landa­kots­smitið mögu­lega kynnt í lok vik­unnar

Skýrsla Land­spít­ala vegna hópsmits­ins á Landa­koti er til­búin í drögum og verður núna rýnd varð­andi aðferða­fræði og síðan kynnt emb­ætti land­lækn­is. Þegar emb­ætti land­læknis verður búið að koma með sínar athuga­semdir og spurn­ingar verður skýrslan kynnt starfs­fólki Land­spít­ala og síðan almenn­ing­i. 

Páll sagði að skýrslan ætti að vera til­búin til opin­berrar kynn­ingar í fyrsta lagi fyrir lok vik­unn­ar.

Mjög hægt verði farið í allar aflétt­ingar

Þórólfur sótt­varna­læknir sagði á fund­inum í dag að hann teldi að það þyrfti að fara „mjög hægt“ í að aflétta núver­andi sótt­varn­ar­að­gerð­um, sem eru í gildi til 17. nóv­em­ber. 



Þórólfur Guðnason á fundinum í dag. Mynd: Almannavarnir

Spurður að því hvort lækk­andi fjöldi nýsmita gæfi ekki til­efni til þess að skoða að létta á aðgerðum sem nú er í gildi fyrr en áætlað var sagði hann svo ekki vera, að sínu mati. Það væri vont að slaka á aðgerðum of snemma og þurfa svo að herða á aðgerðum aft­ur, ef illa færi.

 „Ég held að það eigi allir að vera undir það búnir að við höfum til­tölu­legar harðar tak­mark­anir áfram,“ sagði Þórólf­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent