Bjarni segir spurningar Brynjars eðlilegar og gildar

Fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins varar „mjög alvarlega“ við því að þeir sem spyrji áleitinna spurninga um sóttvarnaaðgerðir séu slegnir niður.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að rík­is­stjórnin hafi staðið mjög þétt saman um til­lögur til sótt­varna í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um. „Eftir því sem að þetta ástand varir lengur þá koma upp fleiri spurn­ing­ar,“ sagði hann í Kast­ljósi á RÚV í kvöld, spurður um ummæli bæði Brynjars Níels­sonar og Sig­ríðar And­er­sen, þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem gagn­rýnt hafa aðgerðir yfir­valda og telja þær ganga of langt.

„Ég er þeirrar skoð­unar að það sé verið að hreyfa mjög eðli­legum sjón­ar­miðum og ég vil vara mjög alvar­lega við því að menn sem velta upp mjög áleitnum spurn­ingum um þessar sótt­varna­ráð­staf­anir séu slegnir nið­ur.“

Auglýsing

 Hann sagð­ist ánægður með að innan hans flokks heyrð­ust raddir um að stjórn­völd geti ekki gripið inn í líf fólks án þess að fyrir því séu skýrar heim­ildir enda stæði end­ur­skoðun sótt­varna­laga fyrir dyr­um. Sagði Bjarni „ekk­ert óeðli­legt“ að gráar línur væru til staðar þegar flóknar sótt­varna­ráð­staf­anir væru ann­ars veg­ar. 

Hann sagð­ist t.d. geta farið til hnykkj­ar­ans síns en hann mætti ekki fara í klipp­ingu. „Þeir sem að segja að þeir sem spyrji spurn­inga um þessa gráu línu séu ein­hvern veg­inn að grafa undan sam­stöð­unni í land­inu – þeir eru að ganga of lang­t.“ 

Brynjar hefur sagt að hann sé að missa þol­in­mæð­ina gagn­vart sótt­varna­að­gerðum og að hann sé hættur með­virkni hvað þetta varð­ar. Bjarni sagði Brynjar verða sjálfan að tala fyrir sínum skoð­un­um. „En ég held að hann hafi hins vegar verið að hreyfa mjög gildum spurn­ingum um það hversu langt er hægt að ganga í sótt­varna­ráð­stöf­unum miðað við það ástand sem þú ert að glíma við.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent