Miðflokkurinn vill selja nýjar höfuðstöðvar Landsbankans til að fjármagna breytingar

Þingmaður Miðflokksins vill að höfuðstöðvar Landsbankans verði seldar fyrir níu milljarða króna. Það er tæplega þremur milljörðum krónum undir áætluðum kostnaði við byggingu þeirra.

Höfuðstöðvar Landsbankans rísa nú við Austurhöfn í Reykjavík.
Höfuðstöðvar Landsbankans rísa nú við Austurhöfn í Reykjavík.
Auglýsing

Í minni­hluta­á­liti þing­manns Mið­flokks­ins í fjár­laga­nefnd, Birgis Þór­ar­ins­son­ar, um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp er lagt til að ríkið láti selja nýbygg­ingu Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn til að fjár­magna þær breyt­ing­ar­til­lögur sem Mið­flokk­ur­inn leggur til á frum­varp­inu. Birgir telur að slík sala myndi skila sam­tals níu millj­örðum króna og að sú upp­hæð ætti að greið­ast sem arður í rík­is­kass­ann, tveir millj­arðar króna vegna sölu lóðar og sjö millj­arðar króna vegna sölu á bygg­ing­unni.

Auk þess leggur hann til að fallið verði frá hækkun á fram­lagi til RÚV og að gerð verði hag­ræð­inga­krafa upp á hálfan millj­arð króna á ráðu­neyti lands­ins. Sam­an­lagt ætti þetta, að mati Birg­is, að skila tæp­lega 9,7 millj­arða króna tekjum fyrir rík­is­sjóð. 

Þessum fjár­munum vill Mið­flokk­ur­inn ráð­stafa í ýmis verk­efni. Dýr­ast þeirra er að lækka trygg­inga­gjald enn frekar á árinu 2021, en sú aðgerð er metin á 3,3 millj­arða króna. Tveir millj­arðar króna eiga að fara í ráðn­inga­styrki á Suð­ur­nesjum, kjör­dæmi Birg­is, og 1,5 millj­arðar króna eiga að fara í að draga úr skerð­ingum atvinnu­tekna á líf­eyr­is­greiðsl­u­m. 

Auglýsing
Þá vill Mið­flokk­ur­inn greiða 400 milljón króna styrk til bænda vegna birgða­söfn­unar í kjöti og mjólk­ur­próteini, hækka elli­líf­eyri og greiða öldruðum sér­staka upp­bót upp á 70 þús­und krón­ur.

Engin póli­tísk ákvörðun á bak­við bygg­ing­una

Kjarn­inn fjall­aði ítar­­lega um áform Lands­bank­ans um að byggja sér nýjar höf­uð­stöðvar við Aust­ur­höfn í frétta­­skýr­ingu sem birt­ist í sept­­em­ber 2019. Þar kom meðal ann­­ars fram að Banka­­sýsla rík­­is­ins, sem fer með hlut rík­­is­­sjóðs í Lands­­bank­­anum hefði ekki haft neina aðkomu að þeirri ákvörðun að reisa nýju höf­uð­­stöðv­­­arn­­ar. 

Það hefur heldur ekki þótt til­­efni til að bera bygg­ingu höf­uð­­stöðva undir hlut­hafa­fund, þar sem eini alvöru hlut­haf­inn, íslenska rík­­ið, gæti sagt sína skoðun á áformun­­um.

Á­kvörð­unin um að ráð­­ast í fram­­kvæmd­irn­­ar, sem áætlað var að myndu kosta um níu millj­­arða króna, hækk­­aði svo í tíu millj­­arða króna en eru nú orðnir tæpir tólf millj­­arðar króna, var því tekin án aðkomu fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins sem heldur á hluta­bréfum íslenska rík­­is­ins í bank­­anum og stofn­un­­ar­innar sem fer með þann eign­­ar­hlut. 

Hún var tekin af banka­ráði á fundi sem hald­inn var 16. maí 2017. Lands­­bank­inn, sem er í 98,2 pró­­sent eign skatt­greið­enda, hefur ekki viljað upp­­lýsa um hvernig atkvæði féllu hjá sjö manna banka­ráð­inu þegar kosið var um bygg­ing­una. 

Því liggur fyrir að sjö manna banka­ráð, sem situr í umboði banka­­sýslu rík­­is­ins, stofn­unar sem heyrir undir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið, tók eitt ákvörðun um bygg­ingu „Kletts­ins“ sem nú rís við hlið Hörpu og mun kosta 11,8 millj­­arða króna, sam­kvæmt því sem kom fram í ávarpi Helgu Bjarkar Eiríks­dótt­ur, for­manns banka­ráðs Lands­bank­ans, sem birt var í árs­skýrslu hans í febr­úar 2020.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent