Lilja segir sátt við heimafólk vera forsendu fyrir hálendisþjóðgarði

Í vikulokunum í morgun sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, að Framsóknarflokkurinn hefði sett fram nokkur skilyrði vegna hálendisþjóðgarðs. Helst þurfi að skerpa á málum þeirra sem eru í næsta umhverfi þjóðgarðs.

Lilja Alfreðsdóttir og hálendið
Auglýsing

Til þess að sátt ríki um mið­há­lend­is­þjóð­garð þarf að ná meiri sátt við heima­fólk og aðra í nærum­hverfi þjóð­garðs að mati Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Lilja var einn gesta Viku­lokanna á Rás 1 fyrr í dag þar sem meðal ann­ars var rætt um fyr­ir­hug­aðan þjóð­garð. Í þætt­inum sagði Lilja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði sett fram ákveðin skil­yrði vegna þjóð­garðs­ins sem hefðu verið kynnt fyrir umhverf­is­ráð­herra, Guð­mundi Guð­brands­syni.



Hún sagði málið vera mjög vel unnið og að umhverf­is­ráð­herra hefði lagt mikið á sig til þess að reyna að ná sátt um mál­ið. Helstu aðfinnslur Fram­sókn­ar­flokks­ins snúi hins vegar að því að sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur þeirra sem eru í nán­asta umhverfi þjóð­garðs­ins, svo sem sveit­ar­fé­laga, sé ekki nægi­lega tryggð­ur. „Við teljum að það þurfi að skerpa betur á þessu og það þurfi að ná þess­ari sátt og ég held að það séu vís­bend­ingar uppi um að svo sé,“ sagði Lilja.



Líkt og Kjarn­inn hefur fjallað um er ekki ein­ing um málið innan stjórn­ar­flokk­anna. Nú í vik­unni sendi Jón Gunn­ars­son, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, frá sér grein þar sem hann sagði að þjóð­garður yrði ekki að veru­leika í vet­ur. Í grein sinni spurði Jón meðal ann­ars að því hvaða hags­munum yrði fórnað ef þjóð­garður yrði að veru­leika: „Ekk­ert mat var lagt á aðra hags­muni sem þó liggur í augum uppi að eru mjög mikl­­ir. Hverju erum við að fórna með því að loka á alla aðra mög­u­­lega nýt­ingu á hálend­in­u?“

Auglýsing


Ræða þurfi málið til botns ef þjóðin er ósátt

Aðrir gestir viku­lokanna voru þau Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar. Loga finnst leitt hvernig íbúum ólíkra svæða hefur verið still upp í mál­inu: „Ég held að við 350 þús­und manna þjóð þurfum nú ekki á enn einu mál­inu að halda þar sem að er verið að reyna að stilla þessu upp eins og heima­menn séu eitt og aðrir Íslend­ingar ann­að, þetta er hags­muna­mál allra Íslend­inga.“



Hann sagði það einnig dap­ur­legt að þraut­reyndur þing­maður og Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, hefði kom­ist jafn klaufa­lega að orði í pontu þings­ins og raun var þegar hann tal­aði um „grenj­andi minni­hluta“. Logi kall­aði í kjöl­farið eftir því að umræðan um málið sé hóf­stillt og upp­lýsand­i. 



Að mati Loga er margt gott að finna í frum­varp­inu og það vel unn­ið. „Þó er það þannig að ef að það er stór hluti þjóð­ar­innar sem er ósáttur þá leiðir það bara af sjálfu sér að þá þarf að ræða málið til botns,“ sagði hann.

Auk Lilju voru þau Logi Einarsson og Hanna Katrín Friðriksson gestir Vikulokanna. Myndir: Bára Huld Beck.

Of mikil mið­stýr­ing að mati Hönnu Katrínar

Hanna Katrín sagði að enn væri ágrein­ingur um ýmiss mál er varða þjóð­garð­inn. „Þetta mál er bara ekk­ert full­búið og við hin sitjum bara og horfum á og ég er, bara svo ég segi eins og er, ég er varla til­búin í að fara í þriðja umgang í að setja mig og við í Við­reisn inn í þetta mál, því við vitum að þetta er ekki svona sem að stjórn­ar­flokk­arnir ætla að leggja þetta fram, það verða ein­hverjar breyt­ing­ar,“ sagði hún í þætt­in­um.



Henni þókn­ast heldur ekki sumar af þeim lausnum sem lagðar hafa verið til til að koma til móts við ólík sjón­ar­mið. „Síðan er verið að mæta gagn­rýn­is­röddum með því að ein­hvern veg­inn að girða fyrir hér og þar og til þess til dæmis að mæta kröfum um aukna aðkomu sveit­ar­fé­laga þá er búið að búa til mjög flókið kerfi alls­konar stjórna og hópa sem gerir það að verkum að mið­stýr­ingin verður svo mik­il,“ sagði Hanna Katrín. Að hennar sé heil­mikil vinna eft­ir, vinna sem þurfi að ráð­ast í til að lægja öldur ósættis um mál­ið.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent