„Það er verið að handtaka mig af lögreglunni fyrir að segja hug minn“

Héraðsfréttamiðillinn Austurfrétt hefur birt tvö SMS frá þeim einstaklingi sem var í haldi lögreglunnar á Austurlandi vegna meintra hótana í garð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Seyðisfirði í dag.

Lögreglan skoðaði hvort hótanir hefur verið settar fram í garð forsætisráðherra.
Lögreglan skoðaði hvort hótanir hefur verið settar fram í garð forsætisráðherra.
Auglýsing

Hér­aðs­frétta­mið­ill­inn Aust­ur­frétt birtir í dag tvö SMS-­skeyti sem sögð eru frá þeim ein­stak­lingi sem sat í haldi lög­regl­unnar á Aust­ur­landi, grun­aður um hót­anir í garð for­sæt­is­ráð­herra. Aust­ur­frétt seg­ist hafa ákveðið að birta bæði SMS skeytin eftir að hafa haft sam­ráð við lög­fræð­inga og þar sem ekki leiki vafi á upp­runa þeirra.

Í fyrra skeyt­inu frá mann­inum kemur fram að hann telji að verið sé að hand­taka sig af lög­regl­unni fyrir að segja hug sinn. „Ég verð á lög­reglu­stöð­inni meðan for­sæt­is­ráð­herra hittir fólk á Egils­stöð­u­m,“ segir í því síð­ara, sam­kvæmt frétt mið­ils­ins.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu síð­degis kom fram að eftir „sam­ræð­ur“ við mann­inn hefði lög­regla talið að „engin ástæða sé til frek­ari aðgerða gagn­vart honum eða við­bragða að öðru leyt­i.“

Auglýsing

Krist­ján Ólafur Guðna­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­­regl­unni á Aust­­ur­landi sagði við Kjarn­ann fyrr í dag að „óstað­­fest­ar“ fregnir af hót­unum í garð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hefðu borist lög­reglu, en Katrín var þar í heim­sókn ásamt þremur öðrum ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Krist­ján Ólafur sagði að búið væri að ná tali af þeim sem hefði sett meintar hót­­­anir fram. Ekki feng­ust upp­­lýs­ingar um hvers eðlis meintar hót­­­anir voru eða hvernig þær voru settar fram.

Í frétt Vísis í hádeg­inu var rakið að Lísa Krist­jáns­dóttir aðstoð­­ar­­maður ráð­herra hefði dregið Katrínu til hliðar skömmu áður en hún hugð­ist koma í útvarps­­við­­tal í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar rétt fyrir kl. 12 á hádegi. Þar sagði að ráð­herra hefði svo hafi verið fylgt í bak­her­bergi í ferju­­húsi Smyril Line við höfn­ina á Seyð­is­­firð­i. 

Lög­­regla varð­ist allra fregna í fyrstu og fjöl­miðla­­menn lýstu því að nokkur ringul­reið hefði verið á staðn­­­um.

For­sæt­is­ráð­herra hefur ekki viljað tjá sig um þessi atvik við fjöl­miðla. Í frétt á vef mbl.is sagði að Katrín hafi látið sem ekk­ert hafi í skorist eftir að þessi atvik komu upp, en þess má einnig geta að um 20 mín­útum eftir að henni var kippt til hliðar í fylgd lög­­­reglu fyrir áætlað við­­tal við Bylgj­una var hún komin í við­­tal í beinni útsend­ingu í hádeg­is­fréttum Rík­­is­út­­varps­ins.

Lög­regla ræddi við mann­inn og sér ekki til­efni til frek­ari við­bragða

Upp­fært kl. 15:50: Lög­regla sendi frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins síð­deg­is. Þar segir að upp­lýs­ingar hefðu borist lög­reglu um hót­anir sem hefðu átt að hafa beinst að for­sæt­is­ráð­herra.

„Sá er bor­inn var fyrir hót­un­inni reynd­ist þá ekki vera á Seyð­is­firði. Lög­regla hefur nú rætt við hann og telur eftir þær sam­ræður að engin ástæða sé til frek­ari aðgerða gagn­vart honum eða við­bragða að öðru leyt­i,“ segir í til­kynn­ingu lög­reglu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent