Rannsaka ætluð brot eiganda Bræðraborgarstígs 1

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til skoðunar ætlað brot fyrrum eiganda Bræðraborgarstígs 1 á byggingarreglugerð. HMS segir að eigandanum hafi borið að tryggja brunavarnir hússins og þær ekki reynst í samræmi við lög.

Rústir hússins að Bræðraborgarstíg 1 standa enn, yfir hálfu ári eftir að það brann.
Rústir hússins að Bræðraborgarstíg 1 standa enn, yfir hálfu ári eftir að það brann.
Auglýsing

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er með til skoð­unar ætlað brot fyrrum eig­anda Bræðra­borg­ar­stígs 1 á bygg­ing­ar­reglu­gerð. Þetta stað­festir Hulda Elsa Björg­vins­dótt­ir, sviðs­stjóri ákæru­sviðs lög­regl­unn­ar, við Kjarn­ann.



Þrír lét­ust í elds­voða í hús­inu 25. júní síð­asta sum­ar, allt ungt fólk frá Pól­landi. Tveir slös­uð­ust alvar­lega. Húsið var þá í eigu félags­ins HD Verks en í byrjun jan­úar gengu kaup Þorps­ins vist­fé­lags á bruna­rúst­unum og á hús­inu við hlið­ina í gegn. Eig­andi HD Verks er Krist­inn Jón Gísla­son.

Auglýsing



Sam­kvæmt rann­sókn bæði lög­reglu og Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar var eldur lík­lega kveiktur í hús­inu á tveimur stöð­um. Karl­maður á sjö­tugs­aldri, sem var íbúi í hús­inu, var í haust ákærður fyrir íkveikj­una, þrjú mann­dráp og tíu mann­dráp­stil­raun­ir. Sam­kvæmt mati geð­læknis var hann ósak­hæfur á verkn­að­ar­stund en tveir yfir­mats­menn voru fengnir til að fara yfir geð­matið og liggur nið­ur­staða þeirra enn ekki fyr­ir. Dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur hefur þó þegar ákveðið að þing­haldið verði opið en ekki lokað að hluta eða í heild líkt og verj­andi manns­ins fór fram á.



­Rann­sak­endur Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar telja að, óháð því hvort um íkveikju hafi verið að ræða, þá hafi fleiri sam­verk­andi þættir haft áhrif á að elds­voð­inn varð jafn mann­skæður og raun bar vitni. Um var að ræða yfir hund­rað ára gam­alt for­skalað timb­ur­hús sem ekki var vel úr garði gert með til­liti til bruna­varna í upp­hafi.



Í skýrslu stofn­un­ar­innar um brun­ann, sem gefin var út um miðjan des­em­ber, kemur fram að upp­haf­legar teikn­ingar liggi ekki fyr­ir, en nýj­ustu sam­þykktu teikn­ing­arnar af hús­inu sé frá árinu 2000. „Þær bruna­varnir sem þær teikn­ingar gerðu ráð fyrir voru ekki til staðar þegar brun­inn varð,“ segir í skýrsl­unni. Her­bergja­skipan var líka önn­ur. Bruna­hólfun að stiga­húsi var ekki til staðar né þau björg­un­arop sem voru á sam­þykktum teikn­ing­um. Eins hefur inn­gangi á 2. hæð húss­ins á ein­hverjum tíma­punkti verið lokað með þeim afleið­ingum að í stað tveggja flótta­leiða úr íbúð­inni var bara ein flótta­leið. 

Eig­andi ber ábyrgð á bruna­vörnum

Skýrslu­höf­undar harma að loka­út­tekt eft­ir­lits­að­ila sem fram fór á árinu 2000 hafi ein­ungis tekið til 1. hæðar húss­ins þar sem dag­vist­un­ar­heim­ili var rekið á þeim tíma en efri hæðir húss­ins voru ekki skoð­að­ar. Var því ekki hægt að full­yrða hvort efri hæðir húss­ins hafi á ein­hverjum tíma verið til sam­ræmis við sam­þykktar teikn­ing­ar. „Eig­andi húss­ins á hverjum tíma bar ábyrgð á ástandi húss­ins, var skylt að sækja um til­skilin leyfi vegna breyt­inga á hús­næð­inu og eins bar honum að tryggja við­un­andi bruna­varn­ir,“ segir í skýrsl­unni. Í henni kemur fram að notkun húss­ins var önnur en teikn­ingar gerðu ráð fyrir og for­sendur allt aðrar gagn­vart bruna­ör­yggi. Húsið var í raun notað til útleigu á her­bergjum en ekki sem tvær íbúð­ir. Breytt notkun kall­aði á auknar bruna­varnir og eld­varn­ar­eft­ir­lit.

Vasile Tibor Andor bjó á rishæðinni og varð innlyksa í eldhafinu. Hann sagði sögu sína og frá björguninni sem hér sést í viðtali við Kjarnann í nóvember. Mynd: Aðsend



Í ítar­legri umfjöllun Kjarn­ans um elds­voð­ann og eft­ir­mál hans, sem birt var í nóv­em­ber, sögð­ust íbúar sem rætt var við ekki hafa heyrt í reyk­skynj­urum er eld­ur­inn kvikn­aði. Þeir hefðu ekki orðið hans varir fyrr en þeir heyrðu öskur sam­býl­inga sinna.



Í skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar kom fram að aðeins einn reyk­skynj­ari hafi fund­ist í rústum húss­ins að Bræðra­borg­ar­stíg. Hann var án raf­hlöðu. Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar á rann­sókn brun­ans er m.a. sú að bruna­vörnum í hús­inu hafi verið veru­lega ábóta­vant og ekki í sam­ræmi við lög.



Brot á lögum um mann­virki og reglu­gerðum settum sam­kvæmt þeim varða sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum nema þyngri refs­ing liggi við sam­kvæmt öðrum lög­um.



Brun­inn á Bræðra­borg­ar­stíg er sá mann­skæð­asti sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent