22 þúsund manns fara í gegnum Leifsstöð á sunnudögum

kef-2.jpg
Auglýsing

Álagið er mikið á starfs­fólki flug­stöðvar Leifs Eiríks­son­ar, sér­stak­lega á sunnu­dögum þegar að með­al­tali 22.000 manns fara í gegnum hús­ið. Guðni Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Isa­via, seg­ist þegar merkja um 20 pró­sent fjölgun ferða­manna milli ára í júlí. Ferða­fólki á leið í gegnum Leifs­stöð hefur fjölgað um 29 pró­sent frá ára­mót­um, miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Aukn­ing ferða­manna í júní sé miðað við júní í fyrra var 25 pró­sent. Ferða­mála­stofa birti tölur yfir aukn­ing­una í byrjun júlí. Ferða­mönnum hefur fjölgað alla mán­uði árs­ins miðað við árið áður um 20 til 36 pró­sent, eða að jafn­aði um 29 pró­sent. Bara í júní fóru 137.000 ferða­menn um flug­stöð­ina. Guðni segir einnig mikla aukn­ingu í júlí og telur hana vera um 20 pró­sent.

Til þess að mæta þessum aukna straumi ferða­manna í gegnum flug­stöð­ina hér á Íslandi hefur Isa­via ráð­ist umfangs­miklar end­ur­bætur og stækk­anir í Leifs­stöð. Nú er búið að reisa heila nýja álmu sem er um 5.000 fer­metrar að flat­ar­máli. Hún er að sögn Guðna til­búin að utan en tal­verð vinna á eftir að fara fram við inn­rétt­ing­ar.

Auglýsing

Áætluð verk­lok eru í maí 2016 eins og lagt var upp með. Flug­stöðin var fyrir um 56.000 fer­metrar svo verið er að stækka hana um tæp­lega tíu pró­sent. Fram­kvæmdin kostar um það bil 2,6 millj­arða íslenskra króna. Stækk­unin er yst í flug­stöð­inni eða á svæð­inu sem þjónar far­þegum á leið til eða fra löndum utan Schengen.

Þá er einnig unnið að stækkun komusal­ar­ins um 700 fer­metra. Þar á að fjölga far­ang­urs­beltum og gera aðstöðu fyrir aftan toll­hliðin betri fyrir aðstand­endur ferða­langa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None