Adolf Ingi og Radio Iceland í loftið á hádegi

14050620829-48467e93f5-z-1.jpg
Auglýsing

Útvarps­stöðin Radio Iceland hefur útsend­ingar sínar á hádegi í dag, en stöðin er í eigu Adolfs Inga Erlings­son­ar, sem starf­aði um ára­bil sem íþrótta­f­rétta­maður hjá RÚV. Útvarps­stöðin hyggst þjón­usta erlenda ferða­menn á Íslandi, en þar verður allt dag­skrár­efni á ensku, fréttir á heila tím­an­um, upp­lýs­ingar um færð og veð­ur, stiklur um áhuga­verða ferða­manna­staði og þá verður ein­ungis leikin íslensk tón­list. Kjarn­inn sagði frá fyr­ir­ætl­unum Adolfs Inga í nóv­em­ber.

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra og ráð­herra ferða­mála, mun hleypa útvarps­stöð­inni form­lega af stokk­unum á hádegi í dag, en Adolf Ingi segir mikla til­hlökkun á meðal starfs­manna stöðv­ar­inn­ar.

Einkennismerki útvarpsstöðvarinnar. Ein­kenn­is­merki útvarps­stöðv­ar­inn­ar.

Auglýsing

„Þetta er búið að vera býsna langt ferða­lag, og nokkrir mán­uðir búnir að fara í und­ir­bún­ing og margt sem hefur þurft að gera. Það er rosa stemmn­ing og spenn­ingur í okkur að fara í loftið í dag og við erum til í slag­inn og óhætt að segja hér ríki tals­verð eft­ir­vænt­ing,“ segir Adolf glaður í bragði í sam­tali við Kjarn­ann.

Lítur fram­tíð­ina björtum augum



Ad­olf kveðst bjart­sýnn á vel­gengni stöðv­ar­inn­ar. „Það þýðir ekk­ert ann­að. Við erum að bjóða upp á kost sem engin annar er að gera á mark­aðn­um, að ná eyrum erlendra ferða­manna á meðan þeir eru að ferð­ast hérna um land­ið.“

En hvernig hefur gengið að ná eyrum aug­lýsenda, til að veðja á stöð­ina til að ná til erlendra ferða­manna? „Við höfum fengið mjög góðar und­ir­tektir og svo núna þegar við förum í loftið von­umst við til að sjá aug­lýs­ing­arnar hrann­ast inn, en það hefur auð­vitað verið erfitt að selja í eitt­hvað sem er ekki komið í gang. En við höfum fengið mjög jákvæð við­brögð allra aðila í ferða­brans­anum og ann­arra, aug­lýs­inga­stof­unum og fleirum, því að mönnum finnst eins og þetta sé eitt­hvað sem hafi vant­að.“

Adolf segir lyk­il­at­riði að tryggja gott sam­starf við bíla­leig­urnar til að ná til erlendra ferða­manna á Íslandi, en auk þess muni stöðin aug­lýsa útsend­ing­ar­tíðn­ina í flug­vél­un­um. „En lyk­ill­inn er fyrst og fremst gott sam­starf við bíla­leig­urn­ar, því lang stærsti hluti þess­ara ferða­manna tekur bíla­leigu­bíla og þá er mik­il­vægt að stöðin sé stillt inn á útvarps­tækin í þeim og þeir séu látnir vita af þjón­ust­unn­i.“

Að sögn Adolfs er í burð­ar­liðnum sam­starf við helstu bíla­leigur lands­ins. „Við erum, getum við sagt, að vinna í því að koma á frekar víð­tæku sam­starfi við bíla­leig­urn­ar. En þær eru líka mjög jákvæðar því þær líta á þetta sem frek­ari þjón­ustu við sína við­skipta­vin­i.“

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None