Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands og Kristján Loftsson fóru saman í sjóstangaveiði

Kristján Loftsson
Auglýsing

Aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, Vla­dimir Titov, fór í sjóstanga­veiði með Vil­hjálmi Vil­hjálms­syni, for­stjóra útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins HB Granda, og Krist­jáni Lofts­syni, hlut­hafa og ­stjórn­ar­manni í HB Granda og fram­kvæmda­stjóri Hvals hf., um borð í íslensku skipi sem heitir Aur­ora á Faxa­flóa um miðj­an ­síð­asta mán­uð. Stundin greinir frá þessu í dag. Aðrir um borð í skip­inu voru Anton V. Vasili­ev, sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, Jón Ólafur Hall­dórs­son, for­stjóri Olís og ­kaup­sýslu­mað­ur­inn Erlendur G. Auð­uns­son, sem meðal ann­ars hefur stundað kjöt­út­flutn­ing frá Íslandi. Titov var þá staddur hér á landi og fund­aði meðal ann­ars í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Jón Ólafur Hall­dórs­son segir í sam­tali við Stund­ina að um skemmti­sigl­ingu hafi verið að ræða en ekki fund. Krist­ján Lofts­son vildi ekki ræða ferð­ina við blaða­mann Stund­ar­inn­ar.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Hvalur og HB Grandi tengj­ast tveimur málum er varða sam­skipti við rúss­nesk stjórn­völd. Ann­ars vegar flutti Hvalur um 1.700 tonn af hval­kjöti frá Trömsö í Nor­egi, norður fyrir Rúss­land áleiðis til Japan. Hins vegar á HB Grandi mik­illa hags­muna að gæta í Rúss­landi, en í kjöl­far þess að inn­flutn­ings­bann Rússa tók gildi fyrir íslenskar afurðir þann 13. ágúst síð­ast­lið­inn þá greindi HB Grandi frá því að 17 pró­sent tekna félags­ins 2014 hafi komið til vegna við­skipta á Rúss­lands­mark­aði.

Auglýsing

Íslenskir ráða­menn og hags­muna­að­ilar hafa fundað og rætt við rúss­nesk stjórn­völd í kjöl­far banns­ins. Kjarn­inn greindi frá því í gær að Kol­beinn Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, hitti sendi­herra Rúss­landi á Íslandi í fyrra­dag.  Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ræddi við Dmi­try Med­vedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, sím­leiðis dag­inn eftir að bannið tók gildi og þá hitti Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sendi­herra Rússa á Íslandi, sama dag og bannið tók gildi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None