Af hverju gerir unga fólkið á Íslandi ekki uppreisn?

3392681232_8d7bb86986_z.jpg
Auglýsing

Af hverju sættir ungt fólk sig við þær aðstæður sem þeim er boðið upp á í íslensku sam­fé­lagi? Flestar ákvarð­anir sem stjórn­mála­menn taka virð­ast snú­ast um að verja sér­hags­muni þeirra sem eiga og að stuðla að milli­færslum úr rík­is­sjóði sem gera ungu fólki erf­ið­ara fyrir að koma undir sig fót­un­um.

Mar­grét Krist­manns­dótt­ir, fyrrum for­maður Sam­taka versl­unar og þjón­ustu, fjallar um þetta í nýjum pistli sem birt­ist á síðu Hring­brautar. Þar segir Mar­grét að við ungu kyn­slóð­inni blasi ekk­ert annað en að feta í fót­spor þeirra sem lentu í verð­bólgu­bál­inu á níunda ára­tug síð­ustu ald­ar. „Við ungu kyn­slóð­inni blasir við mjög ein­föld sviðs­mynd sem sýnir að valið stendur á milli þess að taka verð­tryggð fast­eigna­lán með +/- 4% vöxtum eða óverð­tryggð lán með +/- 8% vöxt­um. Og þetta eru afleit­ir val­kost­ir. Ég hef stundum sagt að þetta sé val um að láta lúberja ­sig eða rota.

En það allra versta er það er ekk­ert í kort­unum sem sýnir að þetta sé að fara að breyt­ast. Engin ný pen­inga­stefna - engin fram­tíð­ar­sýn - bara haldið áfram á sömu braut ár eftir ár eftir ár. Þar sem breyt­ingum er þó lofað með reglu­legu milli­bili um að þetta standi allt til bóta með betri hag­stjórn - sem sé rétt handan við horn­ið. En árin líða samt áfram eitt af öðru - og ár verða ára­tugir við óbreytt ástand.

Auglýsing

En unga fólkið á ekki að sætta sig við þessa val­kosti - heldur gera kröfu um að þeim standi til boða sömu lána­kjör og í nágranna­lönd­un­um. Þau eiga að neita að það eitt að eign­ast heim­ili kosti ára­tuga ánauð.

Þau eiga ein­fald­lega að taka málin í sínar hendur og ýta í burtu kyn­slóð­inni sem hefur reynst ofviða að gera lífs­kjörin hér eins og þau best geta orð­ið.“

Kjarn­inn ætlar að gera pæl­ingu Mar­grétar að sinni og spyrja, líkt og hún gerir í fyr­ir­sögn á pistli sín­um, af hverju gerir unga kyn­slóðin ekki upp­reisn?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None