Afstaða Framsóknar og flugvallarvina óbreytt, vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýri

sveinbjorg-0-1.jpg
Auglýsing
Afstaða Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina er jafn­skýr nú sem áður, þeir styðja áfram­hald­andi veru Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá borg­ar­stjórn­ar­flokki Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina sem send var út í kjöl­far þess að Rögnu­nefndin svo­kall­aða skil­aði nið­ur­stöðu sinni í dag.  ­Mat nefnd­ar­innar að Hvassa­hraun sé álit­leg­asti kost­ur­inn fyrir flug­völl í Reykja­vík.



Fram­boð Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina snérist að stóru leyti um þá póli­tísku afstöðu að Reykja­vík­ur­flug­völlur yrði áfram í Vatns­mýr­inni. Nið­ur­staða Rögnu­nefnd­ar­innar breytir henni ekki, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Þar seg­ir: "Það er miður að hlut­verk Rögnu­nefnd­ar­innar hafi ekki verið að leggja mat á hag­kvæmni þess að halda Reykja­vík­ur­flug­velli í núver­andi mynd, heldur aðeins að athuga hvort að önnur flug­vall­ar­stæði eða flug­völlur í Vatns­mýri í breyttri mynd kæmu til greina fyrir rekstur inn­an­lands­flugs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.


Athugun stýri­hóps­ins náði ekki til óbreytts flug­vallar í Vatns­mýri enda var það utan skil­greinds verk­sviðs nefnd­ar­inn­ar."




Fram­sókn og flug­vall­ar­vinir fengu tvo borg­ar­full­trúa kjörna í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í fyrra, þær Svein­björgu Birnu Svein­björns­dóttur og Guð­finnu Jóhönnu Guð­munds­dótt­ur. Guð­finna tjáði sig um málið í stöðu­upp­færslu á Face­book fyrr í dag.










Afstaða Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina er jafn­skýr nú sem áður, við styðjum áfram­hald­andi veru Reykja­vík­ur­flug­vallar í...

Posted by Guð­finna Jóh. Guð­munds­dóttir on Thurs­day, June 25, 2015









Nefndin kann­aði fjögur ný flug­vall­ar­stæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Ragna Árna­dótt­ir, for­maður henn­ar, sagði í sam­tali við Kjarn­ann fyrr í dag að vinnan hafi verið bundin við höf­uð­borg­ina. Þess vegna hafi flutn­ingur inn­an­lands­flugs til Kefla­víkur ekki verið skoð­að. „Það var ekki hluti af okkar vinn­u,“ segir Ragna en sá kostur hefur oft verið nefndur í umræð­unni um umdeildan flug­völl­inn í Vatns­mýri og fram­tíð hans.

Auglýsing


Flug­vall­ar­stæðin sem voru skoðuð eru við Bessa­staða­nes, Hólms­heiði, Hvassa­hraun og Löngu­sker auk þess sem breytt útfærsla á legu flug­brauta í Vatns­mýri var met­in. Áætl­aður stofn­kostn­aður yrði í öllum til­vikum á bil­inu 22 til 25 millj­arðar króna, nema á Löngu­skerjum þar sem hann er met­inn um 37 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None