Áhugasamir kaupendur geta séð hæstu tilboð sem borist hafa

Ný veflausn sprotafyrirtækisins KOT, sem hönnuð er til að halda utan um sölu á stórum fasteignaverkefnum, fór í loftið í vikunni. Þar munu kaupendur geta séð hæstu virku tilboð í eignir sem eru til sölu og fengið SMS ef ný tilboð berast.

Veflausn KOT er ætluð til þess að hjálpa þeim sem eru að selja stór nýbyggingaverkefni að halda utan um söluferlið.
Veflausn KOT er ætluð til þess að hjálpa þeim sem eru að selja stór nýbyggingaverkefni að halda utan um söluferlið.
Auglýsing

Sprota­fyr­ir­tækið KOT var stofnað á síð­asta ári, með það að mark­miði að bjóða upp á vef­lausn fyrir sölu stærri fast­eigna­verk­efna sem væri leið­andi þegar kæmi að skil­virkni, yfir­sýn og gagn­virkni. Í vik­unni sem var að líða komu tugir nýrra íbúða sem verk­taka­fyr­ir­tækið ÞG Verk hefur til sölu í Voga­byggð í Reykja­vík inn á vef fyr­ir­tæk­is­ins, sem lýsir lausn sinni sem nokk­urs konar heima­banka fyrir fast­eigna­við­skipti.

Róbert Helgason framkvæmdastjóri KOT.

Róbert Helga­son fram­kvæmda­stjóri KOT segir í sam­tali við Kjarn­ann að það sem fyr­ir­tækið vilji koma til móts við sé hið mikla utan­um­hald sem fylgi sölu íbúða í stærri fast­eigna­verk­efn­um. Í dag sé staðan þannig að það sé ofboðs­lega mikið af tölvu­póstum með skjölum á .pd­f-­formi sem þurfi að vera á flugi á milli selj­anda og fast­eigna­sala og til og frá kaup­endum sömu­leið­is, með til­heyr­andi villu­hættu.

„Það hefur vantað í þennan geira það sama og er á fjár­mála­mark­aði, heima­banka­að­gang, þannig að not­endur geti skráð sig inn og séð sín skjöl og stöðu mála á einum stað,“ segir Róbert í sam­tali við blaða­mann, beð­inn um að útskýra hvaða þörfum KOT sé að mæta.

Hann segir hug­mynd­ina að KOT hafa kviknað vegna fyrri reynslu af fast­eigna­við­skipt­um, þar sem aðgengi að gögnum hafi ekki verið nægi­lega gott, en auk Róberts voru stofn­endur KOT þeir Sveinn Rúnar Sig­urðs­son, Rólant Dahl Christ­i­an­sen og Víf­ill Harð­ar­son.

Hægt að fá SMS þegar til­boð ber­ast í eignir

Ein­stak­lingar sem eru í fast­eigna­hug­leið­ingum geta skráð sig inn á vef­inn og skoðað íbúðir sem þar eru í boði, en sem stendur eru það nokkrir tugir íbúða í nýjum fjöl­býl­is­húsum í Voga­byggð.

Hægt er að merkja eignir sem eru til sölu sem „upp­á­halds“ og fá í kjöl­farið SMS þegar til­boð ber­ast í eign­irn­ar. Einnig er hægt að sjá hversu hátt hæsta boð er, sem er nýlunda á íslenskum fast­eigna­mark­aði.

Róbert segir að þetta sé að nor­rænni fyr­ir­mynd – og að þar tíðk­ist í fast­eigna­við­skiptum að fjár­hæðin sem þurfi að setja fram til að vera með hæsta boð liggi öllum ljós fyr­ir. Ekki verður þó hægt að sjá hvernig sam­setn­ing til­boð­anna er.

Raf­rænt sölu­ferli

Á vef KOT eru til­boð gerð raf­rænt og hægt að hafa yfir­sýn yfir stöðu mála í raun­tíma, auk þess sem und­ir­rit­anir fara fram með raf­rænum skil­ríkj­um. KOT heldur einnig utan um kaup­ferlið og upp­gjör með raf­rænum hætti.

Auglýsing

Fast­eigna­söl­urnar Lind og Mikla­borg þjón­usta sölu­ferlið á íbúð­unum sem nú má finna á vef KOT og segir Róbert að allir aðilar séu áhuga­samir um þessa nýju lausn á fast­eigna­mark­aðn­um, sem sé til þess fallin að auð­velda selj­endum fast­eigna­verk­efna yfir­sýn og umsýslu sem fylgi því að selja tugi eða hund­ruð íbúða á skömmum tíma.

„Það eru allir með sama mark­mið, að ná fram góðu sölu­ferli,“ segir Róbert.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent