Ákærð fyrir fjögur morð á sjúkrahúsi í Danmörku

nykobing.jpg
Auglýsing

Fyrr í vik­unni hófust í Dan­mörku rétt­ar­höld yfir hjúkr­un­ar­fræð­ingi sem grun­aður er um að hafa orðið fjórum sjúk­lingum að bana á sjúkra­hús­inu í Nykøbing á eyj­unni Falstri.

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn, þrí­tug kona, var á næt­ur­vakt á sjúkra­hús­inu í Nykøbing (Nykøbing F sygehus) aðfara­nótt 1. mars sl. Þessa nótt lét­ust þrír sjúk­lingar á hennar deild á sjúkra­hús­inu. Kær­asti vinnu­fé­laga kon­unnar hringdi til lög­reglu um hádeg­is­bil þann dag og sagði frá því að unn­asta sín, sem vann á spít­al­anum og er vitni í mál­inu, hefði komið óvænt inn á stofu á deild­inni um nótt­ina. Þar hefði hún séð hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn með tvær sprautu­nálar í hend­inni bogra yfir rúm­liggj­andi konu. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn hafði reynt að fela sprautu­nál­arnar en vitnið sagð­ist hafa séð þær mjög greini­lega. ­Skömmu síðar dó konan á áður­nefndri stofu og enn­fremur tveir aðrir sjúk­lingar á þess­ari sömu deild. Fjórði sjúk­ling­ur­inn var hætt kom­inn en læknum tókst að end­ur­lífga hann.

Við rann­sókn fannst mikið magn mor­fíns og stesolids (ró­andi) í blóði þeirra þriggja sem lét­ust þessa nótt og sömu sögu var að segja af sjúk­lingnum sem lifði af. Lög­regl­unni í Nykøbing þótti frá­sögn vitn­is­ins svo trú­verðug að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn var hand­tek­inn þennan sama dag og hefur setið í gæslu­varð­haldi síð­an. Spraut­urnar sem sak­sókn­ari í rétt­ar­höld­unum kallar morð­vopnin fund­ust á spít­al­an­um. Ein sprautu­nálin inni­hélt leif­ar, áður­nefnds mor­fíns og stesolids auk eins efnis til við­bótar en læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa borið fyrir rétt­inum að þessum þrem efnum sé aldrei blandað sam­an. Efnin voru þau sömu og fund­ust í blóði sjúk­lings­ins sem tókst að end­ur­lífga.

Auglýsing

Umfangs­mikil rann­sókn



Rann­sókn máls­ins hefur verið mjög umfangs­mikil og um það bil eitt hund­rað manns verið yfir­heyrð­ir. Skömmu eftir að konan var hand­tekin vakn­aði grunur um að hún tengd­ist enn einu manns­láti, á ann­ari deild, á þessu sama sjúkra­húsi árið 2012. Hún hefur nú verið ákærð vegna þess máls ásamt hinum fyrri.

Tíu and­lát að auki skoðuð



Við upp­haf rétt­ar­hald­anna var frá því greint að verið væri að rann­saka tíu and­lát til við­bót­ar.  Að sögn sak­sókn­ara leikur grunur á að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn teng­ist þeim en nið­ur­stöður úr þeim rann­sóknum eiga að liggja fyrir innan nokk­urra mán­aða.

Við rétt­ar­höldin kom fram að vinnu­fé­lagar kon­unnar á sjúkra­hús­inu höfðu rætt sín á milli um að "það gerð­ist alltaf svo mik­ið" þegar hún væri á næt­ur­vakt og einn hjúkr­un­ar­fræð­ingur hafði neitað að vera með henni á vakt á nótt­unni.

Slúður segir verj­and­inn



Verj­andi hjúkr­un­ar­fræð­ings­ins segir að það sem starfs­fólk tali um sín á milli sé ekki mark­tækt.  Það sé ein­fald­lega slúður eins og þekk­ist á öllum vinnu­stöðum og hafi vinnu­fé­lag­arnir haft grun um eitt­hvað mis­jafnt hafi þeir átt að hafa sam­band við lög­reglu en ekki pískra á göng­un­um. Skjól­stæð­ingur sinn hafi lýst sig sak­lausan af öllum ásök­un­um.  Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn hefur verið úrskurð­aður í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald næstu fjórar vik­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None