Ál hefur ekki verið dýrara í áratug

Álverð hefur hækkað um 75 prósent á alþjóðlegum mörkuðumfrá því í apríl í fyrra. Verðhækkunina má að hluta til skýra vegna framleiðsluhökts í Kína, en aukin eftirspurn eftir bjór og rafbílum hafa líka haft áhrif.

Ál
Auglýsing

Þessa dag­ana nemur heims­mark­aðs­verð á áli tæpum 2.600 Band­ríkja­dölum á hvert tonn eftir að hafa hækkað nær stans­laust síð­asta eina og hálfa árið. Leita þarf aftur til árs­ins 2011 til að finna álíka hátt álverð.

Álrisarnir græða

Sam­hliða hækk­un­inni hafa rekstr­ar­horfur ýmissa álf­ram­leið­enda vænkast, auk þess sem hluta­bréfa­verð þeirra hefur hækkað tölu­vert á síð­ustu mán­uð­um. Líkt og Kjarn­inn hefur áður fjallað um skil­uðu álrisarnir Alcoa og Rio Tinto met­hagn­aði í síð­ustu árs­fjórð­ungs­upp­gjör­unum sín­um. Hluta­bréfa­verð Alcoa hefur líka næstum því þre­fald­ast á síð­asta ári í kaup­höll­inni í New York.

Meiri eft­ir­spurn og minna fram­boð

Sam­kvæmt umfjöllun Fin­ancial Times um málið kemur verð­hækk­unin til vegna auk­innar eft­ir­spurnar á heims­vísu, sam­hliða því að erf­ið­leikar hafi komið upp í álf­ram­leiðslu í Kína. Þar sem ál er notað í ýmsum neyslu­vörum, líkt og bjór­dósum og raf­bíl­um, fylgir heims­mark­aðs­verð þess gjarnan hag­sveifl­um.

Auglýsing

Á sama tíma hafa miklir þurrkar sem geisað hafa um Yunn­an-hérað í Kína haft áhrif á fram­boðið á málm­inum á heims­vísu þar sem álverin hafa þurft að draga úr fram­leiðslu sinni til að ganga ekki á orku­birgð­irn­ar. Sam­kvæmt Fin­ancial Times var búist við því að helm­ing­ur­inn af öllum vexti í álf­ram­leiðslu þetta árið kæmi frá hér­að­inu.

Þrátt fyrir þessa miklu verð­hækkun hefur útflutn­ingur á áli frá Íslandi ekki aukist, en hann nam tæpum 395 þús­und tonnum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni. Þetta er minnsti útflutn­ingur áls í árs­helm­ingum talið í átta ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent