Aldrei meiri munur á væntingum karla og kvenna til efnahags- og atvinnuástands

folk2.jpg
Auglýsing

Vænt­inga­vísi­tala Gallup í júní var 107,1 stig, hún hækk­aði um tæp 24 stig milli mán­aða og hefur ekki mælst hærri síðan í jan­úar 2008. Þegar vísi­talan fer yfir 100 segir það að fleiri neyt­endur séu bjart­sýnir en svart­sýnir á stöðu og horfur í efna­hags- og atvinnu­mál­u­m. Frá upp­hafi árs­ins 2008 hefur vísi­talan aðeins mælst yfir 100 stigum í fjóra mán­uð­i. Allar und­ir­vísi­tölur hækka milli mæl­inga hjá Gallup, mat á efna­hags­líf­inu hækkar um 34 stig og mat á atvinnu­á­stand­inu um rúm 29 stig. Þá hækka vænt­ingar til aðstæðna eftir hálft ár um rúm 28 stig og mat á núver­andi ástandi um 17 stig.

Þegar vænt­inga­vísi­talan er greind eftir kyni kemur í ljós að hækk­unin á sér aðeins stað í við­horfi karla, en lítil breyt­ing er á við­horfum kvenna.

Grein­ing Íslands­banka vekur líka athygli á þessu, að vænt­ingar karl­manna og þeirra sem hafa hæstar tekjur aukast mest. Vænt­inga­vísi­talan fyrir karl­menn mælist 131,4 stig, og hækkar um 43,6 stig milli mán­aða, en hjá konum mælist vísi­talan 75,9 stig og lækkar um 2,8 stig milli mán­aða.

Auglýsing

Mun­ur­inn á vænt­ingum karla og kvenna til efna­hags- og atvinnu­á­stands­ins hefur aldrei verið meiri frá upp­hafi mæl­inga árið 2001. „Er það á­leitin spurn­ing af hverju þessi mikli munur er og hvers vegna hann eykst svo mikið nú sem raun ber vitn­i,“ segir í grein­ingu Íslands­banka. Mun­ur­inn lýsi eflaust aðstöðumun kynj­anna, svo sem launa­mun. Það kunni einnig að skipta máli núna, og skýri að hluta til af hverju svona mikil breyt­ing verður á milli kynj­anna, að hjúkr­un­ar­fræð­ingar séu enn í kjara­deilum við rík­ið. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar séu að stærstum hluta kon­ur. Þá telur grein­ing Íslands­banka að það gæti verið að mun­ur­inn eigi sér töl­fræði­legar skýr­ing­ar, þar sem úrtaks­hóp­ur­inn geti valdið flökti milli mán­aða.

Vænt­inga­vísi­talan hækkar fyrir alla tekju­hópa, en mest fyrir þá sem eru með hæstu tekj­urn­ar. Hjá þeim tekju­hæstu er vísi­talan nú 132,9 stig en hjá þeim tekju­lægstu er hún 79,6.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None