Allir í peningastefnunefnd vildu hækka vexti og vilja hækka þá meira

18598766342_cd570ececc_z.jpg
Auglýsing

Allir fimm nefnd­ar­menn í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands vildu hækka vexti um að minnsta kosti 0,5 pró­sentur á síð­asta fundi nefnd­ar­inn­ar, fyrr í júní­mán­uði. Þeir voru hins vegar ekki sam­mála um hversu mikið og hratt ætti að hækka stýri­vexti. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að hækka stýri­vexti um 0,5 pró­sentu­stig, að til­lögu seðla­banka­stjóra. Fjórir greiddu atkvæði með til­lög­unni en einn kaus á móti og vildi hækka vexti um 1 pró­sentu. Einn þeirra sem kaus með til­lögu seðla­banka­stjóra hefði þó kosið að hækka vexti um 0,75 pró­sent­ur.

Tvær vikur eru síðan ákvörð­unin var til­kynnt og var fund­ar­gerð nefnd­ar­innar birt í dag, venju sam­kvæmt. Í pen­inga­stefnu­nefnd sitja Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, Þór­ar­inn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ing­ur, Gylfi Zoega pró­fessor og Katrín Ólafs­dóttir lekt­or.

„Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að horfur um þróun launa­kostn­að­ar, hækkun verð­bólgu­vænt­inga og vís­bend­ingar um öfl­ugan vöxt eft­ir­spurnar yllu því að óhjá­kvæmi­legt væri að bregð­ast strax við versn­andi verð­bólgu­horfum þrátt fyrir að verð­bólga væri enn undir mark­miði. Allir nefnd­ar­menn voru þeirrar skoð­unar að rétt væri að hækka vexti um að 6 minnsta kosti 0,5 pró­sentur og að rök væru fyrir áfram­hald­andi hækkun vaxta. Þeir voru hins vegar ekki sam­mála um hversu hröð aðlögun taum­halds­ins ætti að ver­a,“ segir í fund­ar­gerð­inni.

Auglýsing


Helstu rök sem fram komu fyrir hækkun vaxta um 0,5 pró­sentur voru þau að verð­bólga væri enn lítil og ekki væri ljóst í hve ríkum mæli launa­hækk­unum yrði velt út í verð­lag eða mætt með hag­ræð­ingu fyr­ir­tækja. Á móti var bent á þá hættu að pen­inga­stefnan væri að bregð­ast of seint og of hægt við.



Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að „ein­sýnt virt­ist að hækka þyrfti vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum ætti að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma litið og senda um það skýr skila­boð með yfir­lýs­ing­unni nú“.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None