Alnæmisfaraldurinn gæti verið úr sögunni árið 2030 - búið að ná þúsaldarmarkmiðum

h_51956143-1.jpg
Auglýsing

Þús­ald­ar­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna í þró­un­ar­málum um alnæmi hefur verið náð, og það á undan áætl­un. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sam­eig­in­legrar áætl­unar SÞ gegn alnæmi, sem var birt í gær í tengslum við alþjóð­legu þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­stefn­una sem nú fer fram í Eþíóp­íu.

Þús­ald­ar­mark­miðið um alnæmi snéri að því að stöðva ætti útbreiðslu HIV-veirunnar og fækka smit­um. Nýjum HIV-smitum hefur fækkað um 35 pró­sent og dauðs­föllum tengdum alnæmi hefur fækkað um 41 pró­sent frá því að mark­miðið var sett árið 2000.

Þá var mark­mið um að árið 2015 hlytu fimmtán milljón sjúk­lingar með­ferð við HIV talið mjög óraun­sætt, en það hafð­ist. Árið 2000 smit­uð­ust 8.500 manns á hverjum degi og 4.300 manns lét­ust á dag af völdum alnæmis eða tengdra sjúk­dóma. Nú er fjöldi nýrra smita um tvær millj­ón­ir, en var 3,1 milljón árið 2000. Ef ekk­ert hefði verið aðgert væru þessi fjöldi lík­lega nálægt sex millj­ónum í dag.

Auglýsing

Ban Ki-moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, segir að heim­inum hafi tek­ist mark­mið sitt, að stöðva útbreiðslu og snúa við þróun alnæm­is­far­ald­urs­ins. Nú þurfi allir að leggj­ast á eitt til að binda endi á alnæm­is­far­ald­ur­inn. „Þetta þýðir að við erum að nálg­ast kyn­slóð lausa við alnæmi.“

SÞ segir skýrsl­una sýna fram á að við­brögðin við HIV hafi verið meðal gáfu­leg­ustu fjár­fest­inga sem ráð­ist hafi verið í á sviði alþjóða­heil­brigð­is­mála og þró­un­ar­mála. Með áfram­hald­andi mark­vissum aðgerðum á næstu fimm árum verði hægt að stöðva alnæmi fyrir árið 2030.

„Fyrir fimmtán árum síðan var í gangi sam­særi um þögg­un. Alnæmi var sjúk­dómur „hinna“ og með­ferðir voru fyrir ríka en ekki fátæka,“ segir Michel Sidi­bé, fram­kvæmda­stjóri sam­eig­in­legu áætl­un­ar­innar gegn alnæmi. „Við höfum sannað að þetta var ragnt, og í dag eru fimmtán millj­ónir manna í með­ferð – fimmtán milljón vel­geng­is­sög­ur.“

Næstum 75 pró­sent allra þung­aðra kvenna sem lifa með HIV í heim­inum hafa nú aðgang að lyfjum sem bæta lífs­gæði þeirra og vernda börn þeirra fyrir smiti.

Eþíópía leiðir þegar kemur að því að tryggja að ekk­ert barn fæð­ist með HIV. Þar hefur smitum meðal barna fækkað um meira en 85 pró­sent á und­an­förnum 15 árum. Ban óskaði Eþíóp­íu­mönnum til ham­ingju með þann árangur og benti á að önnur ríki, eins og Senegal, hafi náð svip­uðum árangri. „Við höfum stöðvað og snúið við þessum far­aldri á heims­vísu. Engin þess­arar vel­gengni hefði átt sér stað án hug­rekkis þess fólks sem lifir með HIV. Við stöndum með ykk­ur.“

Ban minnti þó á að hvergi í heim­inum sé alnæmi úr sög­unni. Margir við­kvæmir hópar yrðu fyrir hindr­unum í þessum mál­um, ungar konur og stúlk­ur, fólk sem þegar sé með HIV-veiruna, sam­kyn­hneigðir karl­menn, trans­fólk, fólk sem er í vændi og fólk sem sprautar sig með eit­ur­lyfj­um. „Eng­inn á að upp­lifa hindr­anir gegn rétti sínum til heilsu, virð­ingar og reisn­ar. Eng­inn ætti að deyja úr alnæmi.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None