Alþingi setur siðareglur til að efla gagnsæi og auka traust almennings

14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Alþing­is­menn eiga ekki að kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni og þeir eiga að greina frá öllum hags­munum sem máli skipta og varða opin­bert starf þeirra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um siða­reglur fyrir alþing­is­menn, sem lögð var fram á Alþingi í dag. Til­gang­ur­inn með siða­regl­unum er að efla gagn­sæi í störfum þing­manna og ábyrgð­ar­skyldu þeirra, og jafn­framt að efla „til­trú og traust almenn­ings á Alþing­i.“

Allir for­setar Alþingis og þing­flokks­for­menn allra flokka standa að til­lög­unni, sem á sér langan aðdrag­anda. Alþingi sam­þykkti breyt­ingar á þing­sköpum í júní árið 2011, og þar kom meðal ann­ars fram að leggja ætti fram til­lögu að siða­reglum fyrir þing­menn. For­sætis­nefnd hóf vinnu við slíkar reglur og skil­aði til­lögum rétt fyrir þing­lok árið 2013, þá var þegar ljóst að ekki myndi nást sam­komu­lag um að afgreiða mál­ið. Ný for­sætis­nefnd fjall­aði um siða­reglur strax sum­arið 2013 og Einar K. Guð­finns­son lagði til að horft yrði til siða­reglna Evr­ópu­ráðs­þings­ins, sem hefur verið gert í nýju regl­un­um.

Sam­kvæmt siða­regl­unum eiga þing­menn að rækja störf sín af ábyrgð, ráð­vendni og heið­ar­leika, taka ákvarð­anir í almanna­þágu, ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra og efla og styðja siða­regl­urnar með því að sýna frum­kvæði og for­dæmi, að því er fram kemur í til­lög­unni.  „Þing­menn skulu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu og fylgja meg­in­reglum um hátt­erni og aðhaf­ast ekk­ert með athöfnum sínum sem kann að skaða orð­spor, til­trú og traust almenn­ings á Alþing­i,“ segir einnig.

Auglýsing

Taka ákvörðun og geta birt hana opin­ber­lega



For­sætis­nefnd skipar þriggja manna nefnd til þess að fjalla um brot á siða­regl­un­um. Tveir nefnd­ar­menn eiga að vera til­nefndir af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins og annar þarf að hafa emb­ætt­is- eða meist­ara­próf í lög­fræði og hinn meist­ara­próf í heim­speki eða hag­nýtri sið­fræði. For­seti til­nefnir for­mann nefnd­ar­inn­ar, en hann á að hafa þekk­ingu á störfum þings­ins og þing­manna, en aðrar kröfur eru ekki gerð­ar.

Siða­reglu­nefndin tekur ákvörðun um það hvort hún telji athafnir þing­manna brjóta í bága við regl­urn­ar. Nefndin lætur for­sætis­nefnd í té álit sitt, og ef for­sætis­nefnd fellst á álitið til­kynnir hún þing­manni um nið­ur­stöð­una og ákveð­ur, ef ástæða þykir til og nefndin er ein­huga um það, hvort birta skuli álitið á vef Alþing­is. Engin önnur við­ur­lög eru við broti á siða­regl­un­um. ­Siða­reglu­nefndin á svo að taka saman árlega skýrslu um fjölda erinda sem henni hafa borist og hún haft til umfjöll­un­ar, og birta hana á vef þings­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None