Andvöku slitið - Arion banki fær 75 milljónir

Arion.Banki_.4.jpg
Auglýsing

Eign­ar­halds­fé­lag­inu And­vöku hefur verið slitið og allt eigið fé þess greitt eig­endum félags­ins í sam­ræmi við lög. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu skila­nefndar And­vöku sem birt­ist á vef félags­ins. Arion banki er stærsti ein­staki eig­andi félags­ins, og fær 75 millj­ónir króna við slit á félag­inu.

Í til­kynn­ing­unn­i kemur fram að tæp­lega 8.300 fyrrum trygg­ing­ar­takar hjá Líf­trygg­inga­fé­lag­inu And­vöku fái næstu daga greidda eign­ar­hluti sína í Eign­ar­halds­fé­lag­inu And­vöku í hlut­falli við iðgjalda­greiðslur sínar á árunum 1989 og 1990, um 187 millj­ónir króna. Fyrstu ávís­an­irnar voru póst­lagðar í dag að því er seg­ir í til­kynn­ingu.

Lægsta greiðsla er fáeinar krónur en sú hæsta hátt í 3,4 millj­ónir króna. Lang­flestir fá greitt á bil­inu 5.000 til 50.000 krón­ur.

Auglýsing

Til­kynn­ingin fer hér orð­rétt á eft­ir:

Á fundi full­trúa­ráðs Eign­ar­halds­fé­lags­ins And­vöku g.f. (And­vaka) hinn 30. októ­ber 2014 var sam­þykkt frum­varp til úthlut­un­ar­gerðar vegna slita á félag­inu. Úthlut­un­ar­gerðin felur í sér að allt eigið fé And­vöku, kr. 573.950.132, skal greitt til eig­enda félags­ins í sam­ræmi við eign­ar­hlut­deild þeirra.



Sam­kvæmt sam­þykktum félags­ins og úthlut­un­ar­gerð eru eig­endur And­vöku (1) Arion banki hf. á grund­velli sam­komu­lags við Gift fjár­fest­ing­ar­fé­lag ehf. með 50,11% hlut, (2) til­greindir trygg­ing­ar­takar And­vöku árin 1989 og 1990 í réttu hlut­falli við iðgjalda­greiðslur þeirra þau ár með 40,73% hlut, og (3) And­vöku­sjóð­ur­inn sem hefur tekið við rétt­indum fyrrum trygg­ing­ar­taka eftir því sem þau hafa fallið niður vegna and­láts eða ald­urs trygg­ing­ar­taka sam­kvæmt ákvæðum sam­þykkt­anna, með 9,16% hlut.



Sam­kvæmt áliti rík­is­skatt­stjóra ber skila­nefnd við slit félags­ins að standa skil á 20% fjár­magnstekju­skatti til rík­is­sjóðs, og nemur skatt­greiðslan kr. 114.730.026. Að teknu til­liti til afdreg­ins fjár­magnstekju­skatts munu hinir til­greindu fyrr­ver­andi trygg­ing­ar­takar And­vöku fá greitt alls kr. 187.019.535 í réttu hlut­falli við iðgjalda­greiðslur þeirra árin 1989 og 1990. Umræddir trygg­ing­ar­takar eru 8295 tals­ins og eiga rétt til um 40,73% þess sem til úthlut­unar er. Um er að ræða 8242 ein­stak­linga og dán­arbú og 53 lög­að­ila. Af per­sónu­vernd­ar­á­stæðum er ekki unnt að birta opin­ber­lega lista yfir greiðslur til trygg­ing­ar­taka.



Á næstu dögum verða þeim sem hafa þekkt heim­il­is­fang hjá Þjóð­skrá sendar ávís­anir vegna eign­ar­hlut­deildar þeirra. Með­al­tals fjár­hæð ávís­ana er um kr. 22.500 og fá lang­flestir greiðslu á bil­inu frá kr. 5.000-50.000. Lægsta greidda fjár­hæð er kr. 8 og fá 121 aðilar greitt undir kr. 1.000. Hæsta greidda fjár­hæðin er um kr. 3.370.000 og fá 45 aðilar greitt yfir kr. 100.000.



Geymslu­greitt verður hjá Lands­bank­anum fyrir þá rétt­hafa sem hafa óþekkt heim­il­is­fang hjá Þjóð­skrá eða inn­leysa ekki ávís­anir sín­ar, og geta hlut­að­eig­andi vitjað greiðslu sinnar þar gegn fram­vísun skil­ríkja og reikn­ings­núm­ers sem aðgengi­legt verður hjá skila­nefnd.



Vegna ákvæða í sam­þykktum And­vöku gerir úthlut­un­ar­gerðin ráð fyrir að til And­vöku­sjóðs­ins hafa runnið eign­ar­rétt­indi þeirra trygg­ing­ar­taka sem lét­ust fyrir 10. mars 2009 eða urðu 72 ára fyrir árs­lok 2010. Áréttað skal að úthlut­un­ar­gerðin og greiðslur til rétt­hafa gera ráð fyrir að eng­inn trygg­ing­ar­taki hefur misst rétt til And­vöku­sjóðs­ins vegna þess tíma sem slita­ferlið hefur tek­ið, og mið­ast rétt­inda­vinnslan við þá dag­setn­ingu sem end­an­leg ákvörðun var tekin um slit And­vöku hinn 11. mars 2011.

Í sam­ræmi við eign­ar­hlut­deild And­vöku­sjóðs­ins fær sjóð­ur­inn kr. 42.085.375. Sam­kvæmt sam­þykktum félags­ins ákveður full­trúa­ráð And­vöku ráð­stöfun And­vöku­sjóðs­ins og var ákveðið að and­virði sjóðs­ins skyldi renna til Sam­bands íslenskra sam­vinnu­fé­laga til verk­efna á sviði fræðslu um sam­vinnu­starf, félags­legrar upp­bygg­ingar og menn­ing­ar­mála.



Arion banki hf. fær á grund­velli sam­komu­lags við Gift fjár­fest­ing­ar­fé­lag ehf. greitt alls kr. 75.115.1995 eftir að tekið hefur verið til sam­komu­lags um skulda­jöfnun vegna skulda Giftar fjár­fest­ing­ar­fé­lags ehf. við And­vöku.



Á vef­slóð­inni www.ehf­and­vaka.is er unnt að nálg­ast frek­ari upp­lýs­ingar sem og að koma á fram­færi fyr­ir­spurnum til skila­nefndar fram til 5. apríl 2015, en þá er ráð­gert að skila­nefnd ljúki end­an­lega störf­um. Í kjöl­far útgreiðslna mun skila­nefnd ljúka störfum sínum lögum sam­kvæmt og óska þess að félagið verði afskráð.



Virð­ing­ar­fyllst,



Skila­nefnd Eign­ar­halds­fé­lag And­vöku g.f.



Guð­steinn Ein­ars­son

Gunn­laugur Úlfs­son hdl.

Ólafur Frið­riks­son

Ragn­heiður Þor­kels­dóttir hdl.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None