Arion banki hagnaðist um 165 milljónir á dag að meðaltali á fyrstu þremur mánuðum ársins

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Arion banki hagn­að­ist um 14,9 millj­arða króna á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015, eða um 165 millj­ónir króna á dag að með­al­tali. Hagn­aður bank­ans á sama tíma í fyrra var 2,9 millj­arðar króna. Hann fimm­fald­að­ist því á milli ára. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­an­um,

Hagn­að­ur­inn er að lang­mestu leyti til­kom­inn vegna ein­skipt­is­at­burða á borð við skrán­ingu bank­ans á hlutum í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum og alþjóða­lega drykkja­fram­leið­and­anum Refresco Ger­ber.  Hagn­aður af reglu­legri starf­semi á tíma­bil­inu nam fjórum millj­örðum króna sam­an­borið við 1,7 millj­arða á sama tíma­bili 2014 og heild­ar­eignir námu 1.004,3 millj­örðum króna sam­an­borið við 933,7 millj­arða króna í árs­lok 2014. Eig­in­fjár­hlut­fall Arion banka í lok mars var 23,9 pró­sent.

Mik­ill hagn­aður í fyrra



Arion banki átti metár í hagn­aði á árinu 2014 og hagn­að­ist þá um 28,6 millj­arða króna. Hluti þess hagn­aðar er vegna upp­reikn­aðs virðis hluta­bréfa í HB Granda. Þá hækk­uðu þókn­ana­tekj­ur, vaxta­tekj­ur, geng­is­hagn­aður og rekstra­tekjur vegna sölu eigna, leigu­tekna, virð­is­breyt­inga á eign­um, iðgjalda af líf­trygg­inga­starf­semi og sölu­hagn­aðar af atvinnu­hús­næði á því ári. Alls hagn­að­ist Arion banki um tæpa 16 millj­arða króna meira í árinu 2014 en á árinu 2013. Það er hagn­að­ar­aukn­ing upp á 125 pró­sent.

Ljóst er að allt stefnir í enn betra ár hjá Arion banka nú miðað við hagn­að­inn á fyrstu þremur árum árs­ins. Sam­an­lagður hagn­aður Arion banka frá því að hann var búinn til á rústum Kaup­þings er um 119 millj­arðar króna.

Auglýsing

Skrán­ing Refresco arð­söm



Kjarn­inn greindi frá því í mars að Refresco hefði verið skráð á markað í Hollandi. Það hefur reynst afar arð­bær ákvörðun hjá eig­endum félags­ins, en þeirra stærstur eru Stoð­ir, sem áður hétu FL Group.

Þrotabú Glitnis er langstærsti eig­andi Stoða, með rúm­lega 30 pró­sent hlut. Arion banki á síðan 16 pró­sent. Á meðal ann­arra eig­enda eru Lands­bank­inn, og sjóðir í stýr­ingu erlendu stór­bank­anna J.P. Morgan og Credit Suis­se. Jón Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri FL Group, Þor­steinn M. Jóns­son, fyrrum stjórn­ar­for­maður Glitnis og áður stór hlut­hafi í FL Group, og Hilmar Þór Krist­ins­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri Kaup­þings, sitja allir í átta manna stjórn Refresco-­Ger­ber fyrir hönd ­ís­lenskra eig­enda.

Reitir voru skráðir á aðal­markað í síð­asta mán­uði í kjöl­far þess að Arion banki seldi 13,25 pró­sent hlut í félag­inu í gegnum útboð sem fyr­ir­tækja­ráð­gjöf fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Arion banka hafði umsjón með. Meðla­gengi seldra hluta í því útboði var tæp­lega 63,9 krónur á hlut en eft­ir­spurn eftir hluta­fénu var fjör­föld. Gengið bréfa í Reitum við lok við­skipta í dag var 62,4 krónur á hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None