Arion banki hagnaðist um tæpa 30 milljarða í fyrra

Arion.Banki-.4-715x320.jpg
Auglýsing

Hagn­aður Arion banka á árinu 2014 nam 28,7 millj­örðum króna eftir skatta sam­an­borið við 12,7 millj­arða króna á árinu 2013. Arð­semi eigin fjár var 18,6 pró­sent sam­an­borið við 9,2 pró­sent árið 2013. Heild­ar­eignir námu 933,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 938,9 millj­arða króna í árs­lok 2013, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu frá Arion banka.

Íslands­banki til­kynnti einnig um upp­gjör sitt í dag en hann hagn­að­ist um 22,8 millj­arða króna, og nemur eig­in­fjár­hlut­fall hans tæp­lega 30 pró­sent­um.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans í árs­lok 2014 var 26,3 pró­sent en var 23,6 pró­sent í árs­lok 2013.

Auglýsing

Hösk­uldur Ólafs­son, banka­stjóri, segir í frétta­til­kynn­ingu að reglu­leg starf­semi bank­ans hafi gengið vel á árinu, og umfram vænt­ingar og áætl­an­ir. „Af­koma var góð á árinu 2014. Reglu­leg starf­semi bank­ans gekk vel og afkoma var umfram vænt­ingar á öllum helstu tekju­svið­um. Óreglu­legir liðir höfðu einnig jákvæð áhrif á afkom­una og þá fyrst og fremst sala á hlut í HB Granda og vel heppnuð skrán­ing félags­ins á aðal­markað kaup­hall­ar, en einnig höfðu jákvæðar virð­is­breyt­ingar áhrif,“ segir Hösk­uld­ur.

Hann segir vaxta­mun hjá bank­anum hafa lækkað um 0,6 pró­sentu­stig á tveimur árum. „Við höfum gert ráð fyrir því á und­an­förnum árum að vaxta­munur bank­ans myndi lækka, sem hann hefur gert um 0,6 pró­sentu­stig, úr 3,4% í 2,8%, á tveggja ára tíma­bil­i.“

Arion banki jók á árinu hlut sinn í Valitor í um 99% með kaupum á 38% hlut af Lands­bank­an­um. Við höfum mikla trú á Valitor sem hefur verið leið­andi í upp­bygg­ingu greiðslu­kor­ta­kerf­is­ins hér á landi og skipar mik­il­vægan sess í starf­semi, stefnu og fram­tíð­ar­sýn Arion banka. Valitor hefur und­an­farið haslað sér völl á erlendum vett­vangi og eru spenn­andi tímar framundan hjá félag­inu.

Hér að neðan má sjá helstu atriði árs­reikn­ings fyrir árið 2014, sam­an­borið við árið 2013.

Helstu atriði árs­reikn­ings­ins



  • Hagn­aður eftir skatta nam 28,6 mö.kr. sam­an­borið við 12,7 ma.kr. árið 2013.


  • Eig­in­fjár­hlut­fall nam 26,3% í lok árs sam­an­borið við 23,6% í árs­lok 2013.


  • Arð­semi eigin fjár var 18,6% sam­an­borið við 9,2% árið 2013.


  • Hreinar vaxta­tekjur námu 24,2 mö.kr. sam­an­borið við 23,8 ma.kr. árið 2013.


  • Hreinar þókn­ana­tekjur námu 13,3 mö.kr. sam­an­borið við 11,2 ma.kr. árið 2013.


  • Rekstr­ar­tekjur hækka á milli ára og námu 54,0 mö.kr. sam­an­borið við 44,3 ma.kr. árið 2013.


  • Hrein virð­is­breyt­ing er jákvæð á árinu og nemur 2,1 ma.kr., sam­an­borið við 0,7 ma.kr. gjald­færslu árið 2013.


  • Tekju- og banka­skattar námu sam­tals 7,3 mö.kr. sam­an­borið við 6,0 ma.kr. árið 2013.


  • Hagn­aður af aflagðri starf­semi nam 6,8 mö.kr. sam­an­borið við 0,4 ma.kr. árið 2013.


  • Kostn­að­ar­hlut­fall var 50,1% en var 57,3% árið 2013.


  • Eigið fé bank­ans var 162,2 ma.kr. en nam 144,9 mö.kr. í lok árs 2013. Bank­inn greiddi arð til hlut­hafa sinna upp á 7,8 ma.kr. á árinu 2014.




 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None