Arion banki kaupir helmingshlut í Verði á 2,6 milljarða króna

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Arion banki hefur keypt ríf­lega helmn­ings­hlut, 51 pró­sent, í trygg­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Verði. Hömlur eru á við­skiptum með eft­ir­stand­andi hluti, að því er segir í til­kynn­ingu, og hafa Arion banki og Vörð­ur­ á­kveðið að gefa út kaup- og sölu­rétt á útistand­andi hlutum sem heim­ila Arion banka að festa kaup á hlut­unum þegar höml­unum hefur verið lyft, eigi síðar en á árinu 2017.

Verð­mæti félags­ins er í við­skipt­unum í heild sinni metið á 37,3 millj­ónir evra eða sem nemur um 5,3 millj­örðum króna. Helm­ings­hlutur er því um 2,67 millj­arðar króna.

Arion banki hefur hug á að efla enn frekar vöxt og þróun Varðar á íslenskum trygg­inga­mark­aði, bæði hvað varðar við­skipti við ein­stak­linga, fjöl­skyldur og fyr­ir­tæki, að því er segir í til­kynn­ingu vegna við­skipt­anna. Engar veru­legar breyt­ingar eru fyr­ir­sjá­an­legar á dag­legum rekstri og breytt eign­ar­hald ætti ekki að hafa áhrif á við­skipta­vini félags­ins.

Auglýsing

„Vörður hefur verið hluti af sam­stæðu BankNor­dik síðan 2009 og á því tíma­bili hefur félagið aukið mark­aðs­hlut­deild sína veru­lega og bætt arð­semi. Við erum að selja mun sterkara félag en við keyptum árið 2009 og ég er hand­viss um að Arion banki muni halda áfram að styðja við þessa jákvæðu þró­un,” segir for­stjóri BankNor­dik Árni Ellef­sen í til­kynn­ingu.

Hösk­uldur Ólafs­son, for­stjóri Arion banka segir að sam­spil banka- og trygg­inga­þjón­ustu sé vel þekkt, ekki síst á Norð­ur­lönd­un­um, og með þessum kaupum hygg­ist Arion banki styrkja starf­semi og alhliða þjón­ustu sem hann býður við­skipta­vinum upp á. „­Trygg­ingar eru, og hafa ver­ið, mik­il­vægur  þáttur í okkar kjarna­starf­semi og með kaup­unum á Verði erum við að bæta skaða­trygg­ingum við þjón­ustu­fram­boð bank­ans. Vörður er öfl­ugt og vax­andi fyr­ir­tæki með sterkt vöru­merki sem við höfum hug á að efla enn frekar í fram­tíð­inn­i,” segir Hösk­uld­ur.

Kaupin eru gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki við­kom­andi yfir­valda og er gert ráð fyrir að salan á 51 pró­sent hlut verði full­frá­gengin innan fárra mán­aða, segir í til­kynn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None