Arion banki vissi ekki hverjum hann var að selja hluta Símabréfanna sem seld voru fyrir útboð

S--minn_01-1.jpg
Auglýsing

Arion banki hafði ekki vit­neskju um alla þá aðila sem stóðu bak við kaupin á fimm pró­sent hlut bank­ans í Sím­anum í ágúst á geng­inu 2,5 krónur á hlut. Arion banka var kunn­ugt um ­Sig­ur­björn Þor­kels­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Barclays, stæði að kaupum á hlutum fyrir um 540 millj­ónir króna. Síðar hefur hins vegar komið fram að Sig­ur­björn keypti hlut­inn með við­skipta­fé­lögum sín­um Árna Hauks­syni og Hall­birni Karls­syni en hver þeirra keypti hlutafé fyrir um 180 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Hóp­ur­inn sem fékk að kaupa í ágúst, og sam­an­stóð af stjórn­endum Sím­ans og völdum hópi fjár­festa, fékk að kaupa bréf á gengi sem er 36 pró­sent lægra en gengið í til­boðs­bók B í útboði félags­ins. Hlut­ur­inn hefur því hækkað umtals­vert í virði á nokkrum vik­um. Sölu­hömlur eru á hlut hóps­ins sem þýða að hann má ekki selja bréfin fyrr en í jan­úar 2017. Eig­endur bréf­anna geta því ekki leyst út hagnað sinn strax.

Hall­dór Bjarkar Lúð­vígs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs Arion banka, skrif­aði aðsenda grein í Morg­un­blaðið á þriðju­dag þar sem hann m.a. varði söl­una til hóps­ins. Þar sagði hann:„Það var mat Arion banka að það myndi styrkja hluta­fjár­út­boðið og Sím­ann til fram­tíðar að fá að félag­inu hóp alþjóð­legra fjár­festa með reynslu af fjár­fest­ingum og fjar­skiptum í fjölda landa. Þessi hópur er því ekki ein­ungis að koma með fjár­magn í félagið heldur einnig dýr­mæta þekk­ingu og reynslu á sviði fjar­skipta sem mun von­andi nýt­ast félag­inu og hlut­höfum þess til fram­tíð­ar.“ Sam­kvæmt frétt blaðs­ins í morgun vissi Arion banki hins­vegar ekki hverjir allir í hópnum voru.

Auglýsing

Órói í stjórn Sím­ans



Í Morg­un­blað­inu í dag segir einnig að stjórn Sím­ans hafi heldur ekki verið kunn­ugt um aðkomu Árna og Hall­björns. Rök­semd Arion banka fyrir að selja fimm pros­ent til hóps sem Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, fór fyrir í ágúst hafi verið sú að  í honum væru ­stjórn­endur hjá fyr­ir­tæk­inu og fjár­festar með alþjóð­a­r­eynslu og sér­þekk­ingu á fjar­skipta­mark­aði. Auk þess segir Morg­un­blaðið að það hafi heim­ildir fyrir því að kaup­verðið hafi verið fast­sett í upp­hafi árs en að stjórn Sím­ans hafi fengið þær upp­lýs­ingar að það hefði verið ákvarðað í lok sum­ars.

Þegar for­svars­menn Arion banka kynntu stjórn Sím­ans hug­myndir að útboði og skrán­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á markað var einnig lögð fram til­laga um að starfs­fólk þess myndi fá kaup­rétti á geng­inu 2,5 krónur á hlut, eða sama gengi og stjórn­enda­hóp­ur­inn og með­fjár­festar þeirra höfðu fengið að kaupa. Í kynn­ing­unni hafi verið rætt um að hafa gengið á kaup­rétt­unum sem næst útboðs­gengi eða örlítið lægra. Morg­un­blaðið hefur það eftir ónafn­grein­gum heim­ild­ar­mönnum að það hafi komið stjórn­ar­mönnum í Sím­anum í opna skjöldu þegar útboðs­gengið var mun hærra. Með­al­verð keyptra hluta í því reyndir 3,33 krónur á hlut, eða 33 pró­sent hærra en stjórn Sím­ans hafði sam­þykkt að selja starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins á.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None