Arion tók yfir Hótel Ísland og seldi með 500 milljóna hagnaði átta vikum síðar

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Arion banki seldi fast­eign­ina Ármúla 9, betur þekkta sem Hótel Ísland, með 500 millj­óna króna hagn­aði átta vikum eftir að bank­inn hafði tekið yfir fast­eign­ina í skulda­skilum undir lok árs 2013. Bænda­sam­tök Íslands, sem voru eig­endur hót­els­ins, komust að því hvert sölu­verðið hafði verið og gerði í kjöl­farið alvar­legar athuga­semdir við fyrri samn­ing um skulda­skil. Það leiddi til þess að Arion banki bætti selj­and­anum að nokkru leyti upp mis­munin á kaup- og sölu­verði fast­eign­ar­inn­ar. Þetta kemur fram í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Þar er rætt við Har­ald Bene­dikts­son, fyrrum for­mann Bænda­sam­tak­anna og núver­andi þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann segir að á meðan að hann hafi ver­ið ­for­maður Bænda­­sam­tak­anna hafi for­svar­s­­menn Hót­­els Sögu og Ari­on banka ekki náð sam­an um sölu á fé­lag­inu sem átti Hót­­el Ísland þar sem verð­hug­­mynd­ir bank­ans  hafi verið of lág­­ar. „Hót­­el Saga lenti eins og mörg önn­ur fyr­ir­tæki í vand­ræðum með skuld­ir sín­ar í hrun­inu og við leit­uðum í sam­­starfi við bank­ann að lausn á þeim vanda. Bank­inn vildi fá eign­ina á verði sem var alltof lágt. Þegar ég hvarf til ann­arra starfa var hót­­elið selt á svip­uðu verði en ör­­fá­um dög­um síðar var það selt þriðja aðila á verði sem var meira en hálf­­um millj­­arði hærra".

Fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing árið 2013



Kjarn­inn greindi frá því í fyrra að Hótel Saga, sem Bænda­sam­tökin eiga einnig, hafi gengið í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu árið 2013. í því ferli lögð­u Bænda­sam­tökin Hótel Sögu til 250 millj­ónir króna í nýtt eigið fé gegn því að fá skuldir Hótel Sögu nið­ur­felld­ar. Þetta var á meðal sam­komu­lags­at­riða í þrí­hliða sam­komu­lagi Bænda­sam­tak­anna, Arion banka og Hótel Sögu ehf. um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu hót­els­ins.

Í skýr­ingum í árs­­reikn­ingi Bænda­sam­tak­anna fyrir árið 2013 kom fram að Arion banki hafi leyst til sín allt hlutafé í Hótel Íslandi, sem var einnig í eigu Bænda­­sam­tak­anna, í tengslum við upp­gjör­ið. Það hótel var svo selt til nýrra eig­enda með um hálfs millj­arða hagn­aði átta vikum síð­ar.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None