Árni Páll: Áfellisdómur yfir Samfylkingunni að fá ekki fylgi Bjartrar framtíðar

16687912498_270dd2aa3a_c.jpg
Auglýsing

Það er áfell­is­dómur yfir Sam­fylk­ing­unni að hún skuli ekki hafa fengið til sín fylgi Bjartrar fram­tíðar þegar það fór að hníga. Í stað­inn fyrir að finna skoð­unum sínum far­veg innan Sam­fylk­ing­ar­innar hafi þetta fólk horft til Pírata. Þetta sagði Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morg­un.

Árni Páll sagði stöðu flokks­ins vera áfell­is­dóm yfir honum sjálfum og flokkn­um. Þró­unin hefði byrjað með stofnun Bjartrar fram­tíðar og haldið áfram. „Ef þú horfir á stöð­una eins og hún er í dag og horfir á hana frá 2012 þá er það í mínum huga áfell­is­dómur yfir sam­fylk­ing­unni að hún skuli ekki hafa orðið vett­vangur fólks sem hefur viljað fara í mál­efna­lega nýsköpun á miðju íslenskra stjórn­mála. Fyrst í Bjartri fram­tíð og síðan í Píröt­u­m.“ Hann spurði svo hvað þetta fólk væri að gera og hvort það vildi gera hluti sem væru í and­stöðu við það sem Sam­fylk­ingin vildi.

„Ó nei, þetta fólk hefur verið að tala fyrir opnu sam­fé­lagi, verið að tala fyrir áfram­haldi aðild­ar­um­sóknar að Evr­ópu­sam­band­inu, beinu lýð­ræði, stjórn­kerf­isum­bót­um, talað fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa. Allt eru þetta mál­efni sem Sam­fylk­ingin hefur barist fyrir á hæl og hnakka frá því að hún var stofn­uð. Og það er áfell­is­dómur yfir Sam­fylk­ing­unni ef fólk telur sig þurfa að vinna þessum málum fylgis ein­hvers staðar ann­ars staðar en innan Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.“

Auglýsing

Hann sagði flokk­inn vera álit­inn einn af fjór­flokk­un­um, en hann væri það ekki, heldur hefði hann verið stofn­aður til höf­uðs fjór­flokkn­um. Ekki hefði verið nóg gert til rjúfa þá ímynd í huga fólks að Sam­fylk­ingin væri kerf­is­flokk­ur. „Orð­ræða okkar er kannski allt of mikið bundin því að vera eins og aðrir flokk­ar, að þrasa um það sem við erum að gera frá degi til dags og verja verk okkar í for­tíð og svo fram­veg­is.“

Þá sagði hann Sam­fylk­ing­una verða að bregð­ast við ástand­inu. „Sam­fylk­ingin verður að bregð­ast við því með því að verða sú fjölda­hreyf­ing sem hún var stofnuð til að vera. Hún verður að hætta að tala eins og gam­al­dags­flokk­ur, hún verður að hætta að vinna eins og gam­al­dags­flokkur og hún verður að leita sér fyr­ir­mynda í laus­beisl­uðum fjölda­hreyf­ingum út um allan heim.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None