Árni Páll: Hefði verið betra fyrir mig persónulega að tapa formannsslagnum

16688730898_9546981371_c.jpg
Auglýsing

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að það hefði mögu­lega verið betra fyrir hann per­sónu­lega ef hann hefði tapað for­manns­kosn­ingu á síð­asta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Árni Páll sigr­aði þá Sig­ríði Ingi­björgu Inga­dóttur með einu atkvæði. Hann hafi hins vegar unnið og í því felist ábyrgð. "Í því felst ábyrgð. Maður getur ekki bara hlaup­ist burt. Auð­vitað hefði kannski verið betra fyrir mig per­sónu­lega ef ég hefði tap­að. En ég vann. Og ég verð að axla ábyrgð á því að ég hef umboð­ið.[...]Ef ég teldi að ég væri vanda­málið og að aðrir flokkar væru ekki í neinum vanda þá væri það auglj­sót að lausnin væru sú að ég stigi til hlið­ar. En það eru allir grónir flokkar í þessum vanda." Þetta kom fram í við­tali við Árna Pál í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í dag.

Þar hrós­aði Árni Páll Píröt­um, sem mæl­ast með 36 pró­sent fylgi um þessar mund­ir, og sagði þá vera jákvæða og hafa margt fram að færa. Það væri þjóð­inni til sóma að fylkja sér um slíkt stjórn­mála­afl. Verk­efni hans í dag væri að leggja fram hug­myndir um hvern­ig ­Sam­fylk­ingin gæti brot­ist út úr þeirri stöðu sem flokk­ur­inn er í og hvernig hún slíti af sér viðjar hins hefð­bundna stjórn­mála­flokks, víkki sig og breikki. "Bjóða fleirum til sam­starfs og hætta að tala sem hefð­bundin gam­al­dags stjórn­mála­flokk­ur. Eftir stendur að þetta snýst ekki um mig og það verður tæki­færi til þess að fram fari alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla um for­mann vel fyrir næstu kosn­ing­ar. Ég mun því þurfa að sækja mér umboð ef aðrir gefa kost á sér til for­mennsku," sagði Árni Páll.

Dagur hefur samúð með Árna Páli



Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur og fyrrum vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, ræddi stöðu flokks síns í þætt­in­um Viku­lok­unum á Rás 1 í gær. Þar sagði hann að mikið þyrfti að ger­ast innan Sam­fylk­ing­ar­innar til að breyta stöðu flokks­ins. Þar var hann einnig spurður um stöðu Árna Páls í ljósi þess að fylgi flokks­ins virð­ist í frjálsu falli og hvort að Árni Páll væri raun­veru­lega rétti mað­ur­inn til að laga stöð­una. Dagur svar­aði því ekki afdrátt­ar­laust en sagði að Árni Páll hefði fengið afger­andi kosn­ingu sem for­maður árið 2013 þegar hann sigr­aði Guð­bjart Hann­es­son í for­manns­kjöri, og skýrt umboð til að leiða flokk­inn. „Ég hef í raun mikla samúð með honum í stöð­unni eins og hún er. Þetta hefur ekki gengið vel. En ég bíð, eins og aðr­ir, eftir næsta flokk­stjórn­ar­fundi og ég held að þetta snú­ist ekki bara um einn for­ystu­mann eða for­yst­una heldur líka þessa skýru póli­tík. Það er líka bara eitt ár síðan að Sam­fylk­ing­unni gekk býsna vel í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um.“

Staðan verri en í afhroð­inu 2013



Í nýj­ustu könnun Gallup, sem birt var fyrir fjórum dögum síð­an, mæld­ist Sam­fylk­inginein­ungis með níu pró­sent fylgi, sem er lægsta fylgi flokks­ins sam­kvæmt mæl­ingum síðan í maí 1998, ári áður en flokk­ur­inn bauð fyrst fram til Alþing­is.

Sögu­lega hefur fylgið því aldrei verið lægra. Flokk­ur­inn fékk 26,8 pró­sent atkvæða þegar hann bauð fyrst fram árið 1999, 31 pró­sent í kosn­ing­unum 2003, 26,8 pró­sent árið 2007 og 29,8 pró­sent í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2009. Eftir þær kosn­ingar var Sam­fylk­ingin stærsti flokkur lands­ins og leiddi fyrstu hreinu vinstri­st­jórn­ina.

Auglýsing



Flokk­ur­inn beið hins vegar afhroð í kosn­ing­unum í apríl 2013 og fékk ein­ungis 12,9 pró­sent atkvæða. Aldrei nokkru sinni í sögu íslenskra stjórn­mála hefur einn flokkur tapað jafn miklu fylgi á milli kosn­inga og Sam­fylk­ingin gerði á milli áranna 2009 og 2013.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None