Árni Páll tekur fálega í hugmyndir um að víkja fyrir Katrínu - segir persónur ekki aðalatriðið

16688730898_9546981371_c.jpg
Auglýsing

Kosn­inga­banda­lag miðju- og vinstri­flokka hefur ekk­ert verið rætt á vett­vangi Sam­fylk­ing­ar­innar og Árni Páll Árna­son, for­maður flokks­ins, tekur fálega í að stíga til hliðar fyrir Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna, svo hún geti leitt slíkt banda­lag. Þetta kemur fram í við­tali við Árna Pál í Frétta­blað­inu í dag.

Rit­höf­und­ur­inn Jón Kalman Stef­áns­son skrif­aði grein sem birt­ist á Kjarn­anum ívik­unni og vakti mikla athygli. Þar kall­aði hann eftir því að vinstri- og jafn­að­ar­menn fylki sér á bak­við Katrínu Jak­obs­dóttir sem leið­toga nýs sam­eig­in­legs fram­boðs í anda R-list­ans. „Ef hún hefur áhuga á að hrifsa sam­fé­lagið úr járn­klóm hags­muna, nýfrjáls­hyggju og lýð­skrumara, þá verður hún að stíga fram og sam­eina vinstri– og miðju­menn að baki sér. Og aðrir for­ystu­menn eiga að víkja. Þeir eiga að taka hags­muni þjóðar fram yfir per­sónu­legan metnað og verða ridd­arar í sveit Katrínar Jak­obs­dótt­ur. Hennar tími er ein­fald­lega runn­inn upp. Hvort sem henni líkar betur eða verr,“ Segir Jón Kalman í grein­inni.

Árni Páll segir per­sónur ekki aðal­at­riðið



Árni Páll var spurður út í mögu­legt kosn­inga­banda­lag í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir hann að það sé mjög ­mik­il­vægt að reyna að byggja val­kost umbóta­sinn­aðra afla um ann­ars konar stjórn­ar­stefnu. "Ég hef lagt mikið kapp á það að vinna með hinum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum og það hefur gengið sífellt bet­ur. Þessir flokkar eru að vinna saman í meiri­hluta í Reykja­vík og gengur ágæt­lega. Það er líka mín sann­fær­ing að falli rík­is­stjórn beri stjórn­ar­and­stöðu sið­ferði­leg skylda til að reyna að mynda meiri­hluta­stjórn. Það hefur ekki verið rætt á vett­vangi Sam­fylk­ing­ar­innar hvort ganga eigi til kosn­inga­banda­lags og ég sé ekki betur en að það sé líka órætt í öðrum flokk­um. Við skulum sjá hvernig þetta þró­ast.“

Aðspurður um hvort til greina komi að stíga til hliðar fyrir Katrínu Jak­obs­dóttur segir Árni Páll: "Katrín Jak­obs­dóttir er góð vin­kona mín og við vinnum náið sam­an. En ég held að per­sónur séu ekki aðal­at­rið­ið. Ég held að stjórn­mála­bar­átta snú­ist um hug­mynd­ir. Það er hins vegar mikil freist­ing að reyna að stytta sér leið og halda að ein­hverjar mann­eskjur geti breytt öllu. Íslensk stjórn­mál eru í hug­mynda­kreppu og flokk­arnir eru ekki að setja fram sýn um það sem mestu skipt­ir: Hvernig tryggja eigi fram­tíð fyrir unga fólkið okkar í þessu landi, fólkið sem er þegar flutt eða er að hugsa sér til hreyf­ings. Þar hefur hreyf­ing jafn­að­ar­manna svör umfram aðrar stjórn­mála­hreyf­ing­ar. Og óháð allri per­sónupóli­tík verður alltaf til hreyf­ing jafn­að­ar­manna á Íslandi, löngu eftir minn dag.“

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None