Ásmundur Einar: allir Íslendingar geti eignast hlut í bankanum

14405659215_b99fa1d7f3_z.jpg
Auglýsing

Skoða ætti þann mögu­leika að allir Íslend­ingar geti beint og milli­liða­laust eign­ast hlut í Íslands­banka eða Lands­bank­an­um. Slíkur sam­fé­lags­banki gæti orðið skyn­sam­leg aðgerð bæði efna­hags­lega og lýð­ræð­is­lega. Þetta segir Ásmundur Einar Daða­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í grein á vef­síðu flokks­ins.

Ásmundur Einar gerir til­lögu kröfu­hafa Glitnis um að afhenda rík­inu allt hlutafé í Íslands­banka að umtals­efni í grein­inni, og það að vænt­an­lega muni íslenska ríkið eign­ast Íslands­banka á næst­unni. Þá verði það þannig að ríkið eigi tvo af þremur stóru bönk­un­um. „Það er mik­il­vægt að annar þess­ara banka verði að stórum hluta í eigu almenn­ings í land­inu. En í stað þess að ríkið eitt eigi bank­ann þá ættum við að skoða þann mögu­leika að allir Íslend­ingar geti beint og milli­liða­laust eign­ast hlut í öðrum þess­ara banka,“ segir Ásmundur í grein­inni. Í fram­haldi af þessu yrði mótuð stefna sem hefði það mark­mið að bjóða sem hag­kvæm­asta þjón­ustu og tryggja hags­muni almenn­ings.

„Í raun ætti að skoða þann mögu­leika að afhenda almenn­ingi hluta bank­ans gegn skýrum skil­yrðum og á hag­stæðum kjör­um. Verði þetta skoðað þá þarf hins­vegar að móta mjög skýrar og gegn­sæjar reglur sem tryggja að ekki sé um að ræða aðkomu fárra útvaldra og að ekki sé hægt að fram­selja hlut­ina í von um skyndigróða.“

Auglýsing

Lengi ljóst að Fram­sókn vill sam­fé­lags­banka



Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkti í vor ályktun um að Lands­bank­inn yrði í rík­i­s­eigu áfram og starfi sem sam­fé­lags­banki.„Lands­bank­inn verði sam­fé­lags­banki í eigu þjóð­ar­innar með það mark­miði að þjóna sam­fé­lag­inu í stað þess að hámarka hagn­að. Til að bregð­ast við fákeppni á banka­mark­aði er nauð­syn­legt að Lands­bank­inn hafi þann til­gang að bjóða góða þjón­ustu á bestu kjörum til að efla sam­keppni í banka­þjón­ustu á lands­vísu. Lands­bank­inn verði bak­hjarl spari­sjóða­kerf­is­ins.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið á annarri skoðun og sam­kvæmt drögum að lands­fund­ar­á­lyktun telur flokk­ur­inn enga þörf á því að bankar séu í eigu rík­is­ins. „­Fyr­ir­séð er að eign­ar­hald á bönkum breyt­ist á næstu árum. Lands­fundur áréttar að engin þörf er á eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum til lengri tíma lit­ið. Tryggja þarf dreifða eign­ar­að­ild að við­skipta­bönk­um. Mik­il­vægt er að sölu­ferli við­skipta­bank­anna verði opið og gagn­sætt“.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None