Ásökun um þegjandi samkomulag "út í Hróa hött" en komi ekki á óvart frá Vigdísi

gylfiarnbjorns.jpg
Auglýsing

„Að slíkt sam­komu­lag hafi verið til er út í Hróa hött,“ segir Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), um ummæli Vig­dísar Hauks­dóttur þess efnis að gervöll verka­lýðs­hreyf­ingin hafi gert þög­ult sam­komu­lag við síð­ustu rík­is­stjórn um að fara ekki í verk­fall á meðan að sú stjórn sat. Þetta kom fram í hádeg­is­fréttum Bylgj­unn­ar.

Gylfi segir ásök­un­ina alveg úr lausu lofti gripna hjá Vig­dísi en að það komi „ekk­ert á óvart kom­andi frá henn­i.“

Gylfi segir síð­ustu rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna hafa rekið stefnu í vel­ferð­ar- og skatta­málum sem meiri sátt var um í sam­fé­lag­inu en þá stefnu sem núver­andi rík­is­stjórn rek­ur.

Auglýsing

Sagði þegj­andi sam­komu­lag hafa verið við lýði



Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefnd­ar, full­yrti í þætt­inum Eyj­unni á Stöð 2 í gær að sam­komu­lag hafi verið til staðar um að gervöll verka­lýðs­ghreyf­ingin færi ekki í verk­fall á meðan að vinstri stjórn var við völd á síð­asta kjör­tíma­bili. „Það var þegj­andi sam­komu­lag, við vitum það alveg,“ sagði Vig­dís.

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, setti ásökunina fram í þættinum Eyjunni í gær. Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, setti ásök­un­ina fram í þætt­inum Eyj­unni í gær.

Hún sagði enn fremur að stað­ans sem væri uppi vegna kjara­deilna og verk­falla væri grafal­var­leg. „Þá er ég fyrst og fremst að tala um þá aðila sem eru rík­is­starfs­menn og halda hér lífi sjúk­linga í herkví, halda hér tveimur land­bún­að­ar­greinum í her­kví lík­a.“

Þar á Vig­dís við verk­föll þeirra stétta sem starfa á Lands­spít­al­anum og þau áhrif sem verk­föll dýra­lækna hafa haft á ali­fugla- og svína­bú, sem geta ekki slátrað og selt ferskt á markað sökum þess. Vig­dís sagð­ist ekki telja að dýra­lækn­ar, og raunar lög­menn hjá Sýslu­mann­inum í Reykja­vík sem eru líka í verk­falli, væru með lág laun.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar á leið­inni í alls­herj­ar­verk­fall



Enn fjölgar þeim stéttum sem eru á leið­inni í verk­fall. Atkvæða­greiðsla um boðun verk­falls hjúkr­un­ar­fræð­inga lauk á mið­nætti, en af þeim 76 pró­sentum félags­manna sem tóku þátt í kosn­ing­unni, voru rúm­lega 90 pró­sent fylgj­andi því að fara í verk­fall.

Ótíma­bundið verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga hefst því að óbreyttu þann 27. maí næst­kom­andi og mun standa þar til samn­ingar nást. Verk­fallið mun hafa víð­tæk áhrif en það nær meðal ann­ars til allra hjúkr­un­ar­fræð­inga sem starfa hjá rík­inu, alls munu 2.146 hjúkr­un­ar­fræð­ingar fara í verk­fall.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None