Átökin magnast - forsætisráðherra Grikklands sagður láta egóið stjórna ferðinni

h_52003829-1.jpg
Auglýsing

Yanis Varoufa­kis, sem var fjár­mála­ráð­herra í Grikk­landi þangað til í sum­ar, gagn­rýnir nú fyrrum nán­asta sam­starfs­mann sinn, for­sæt­is­ráð­herr­ann Alexis Tsipras, harð­lega.

Frá því að Varoufa­kis sagði af sér emb­ætti óvænt, dag­inn eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um neyð­ar­lána­pakka frá lán­ar­drottnum Grikkja, hefur verið nokk­urs konar vopna­hlé á milli þeirra. Nú er Varoufa­kis hins vegar kom­inn í hóp ann­arra hátt­settra manna sem áður voru í Syr­iza-­flokkn­um, sem ráð­ast gegn Tsipras.

Auglýsing


Varoufa­kis er í við­tali við New Review í kvöld og gagn­rýnir þar stefnu Tsiprsas. Hann segir að Tsipras hafi ákveðið að "gef­ast upp" fyrir kröfum lán­ar­drottn­anna sem hafa haldið Grikkjum á floti. Í stað þess að vera trúr kosn­inga­lof­orðum flokks­ins hafi hann leyft egóinu að ná tökum á sér og hafi tekið með­vit­aða ákvörðun um að verða "næsti De Gaul­le, eða Mitt­errand lík­leg­ar."



Gagn­rýni Varoufa­kis er í takt við aukna gagn­rýni meðal vinstri sinn­að­asta hóps­ins sem var innan Syr­iza, en 25 þing­menn hið minnsta hafa yfir­gef­ið ­flokk­inn og myndað nýj­an. Þeir ætlar að reyna að mynda banda­lög með öðrum sem eru mót­fallnir aðhalds­að­gerð­um.



Nú, tæpum átta mán­uðum eftir hinn sögu­lega sigur Tsipras, Varoufa­kis og félaga í Syr­iza, eru þeir báðir horfnir á braut og veru­lega umdeil­an­legt þyk­ir, hvort þeir hafi náð miklum árangri við að end­ur­semja um skuldum vaf­inn þjóð­ar­hag Grikk­lands. Tsipras sagði af sér á fimmtu­dag­inn sem for­sæt­is­ráð­herra og boð­aði um leið til kosn­inga í land­inu 20. sept­em­ber.

Vax­andi þrýst­ingur var á hann innan úr Syr­iza flokkn­um, þar sem mikil óánægja var með það sam­komu­lag sem að lokum var gert við kröfu­hafa. Varoufa­kis var þá þegar búinn að segja af sér sem fjár­mála­ráð­herra, enda var hann æfur yfir sam­komu­lag­inu og afar ósáttur við að Grikkir hafi verið „þving­aðir til þess að taka á sig skuldir sem þeir ráða ekki við“ eins og hann komst sjálfur að orði.

Sam­komu­lagið við kröfu­hafa, sem sam­þykkt hefur verið í gríska þing­inu og þegar er byrjað að vinna eft­ir, gerir ráð fyrir 86 millj­arða evra lán­veit­ing­um, sem er risa­vaxin fjár­hæð fyrir ríf­lega ell­efu millj­óna þjóð. Skuldir hins opin­bera eru svim­andi háar sömu­leiðis og nema um 175 pró­sentum af árlegri lands­fram­leiðslu. Um tutt­ugu millj­arðar evra a þess­ari heild­ar­á­ætlun fara í end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­mála­kerfi lands­ins, sem er að hruni kom­ið, en stór hluti afgangs­ins fer í að end­ur­fjár­magna skuldir og styrkja rekstur hins opin­bera.

Eftir að mik­ill meiri­hluti grísku þjóð­ar­innar hafn­aði sam­komu­lagi við kröfu­hafa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, 6. júlí, hefur mikið vatn runnið til sjáv­ar.

Á aðeins rúm­lega sex vikum hefur Syr­iza flokk­ur­inn misst vopnin og glímir við miklar inn­an­flokks­deil­ur, sem ekki sér fyrir end­ann á. Kosn­ing­arnar 20. sept­em­ber marka því enn á ný tíma­mót í grískt þjóð­líf, og nýtt upp­haf í stjórn­mála­líf­inu á sama tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None