Átta smit greindust innanlands

Allir sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, en alls voru rúmlega 2.000 sýni tekin. Fimm smit greindust í landamæraskimun.

Stöðugur straumur fólks var í sýnatöku við Suðurlandsbraut 34 er Kjarninn leit þar við í morgun.
Stöðugur straumur fólks var í sýnatöku við Suðurlandsbraut 34 er Kjarninn leit þar við í morgun.
Auglýsing

Átta ein­stak­lingar greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.­is. Allir sem greindust inn­an­lands í gær voru í sótt­kví við grein­ingu. Alls voru tekin rúm­lega tvö­þús­und sýni inn­an­lands.

Þetta eru færri smit en greindust í gær – en þá voru þau 17 og þar af tvö hjá ein­stak­lingum sem voru utan sótt­kví­ar. Mörg smit­anna eru hjá nem­endum í grunn­skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Fimm smit greindust í landamæra­skimun í gær, öll í fyrri skimun ein­stak­linga sem komu hingað til lands.

Harðar aðgerðir tóku gildi á mið­nætti

Á mið­nætti tók gildi reglu­gerð um sam­fé­lags­legar tak­mark­anir í nafni sótt­varna, sem eru þær hörð­ustu frá því að far­ald­ur­inn fór af stað hér inn­an­lands fyrir rúmu ári síð­an.

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar sögðu að með því að stíga mjög fast til jarðar væri von­ast til þess að sótt­varn­ar­að­gerðir myndu kveða þá útbreiðslu smita sem virð­ist í fæð­ingu niður á skemmri tíma.

Tíu manna fjölda­tak­­mark­­anir eru nú meg­in­reglan, en 30 manns mega reyndar sækja athafnir á vegum trú­­fé­laga. Ein­ungis börn fædd 2014 og síðar eru und­an­þegin þessum tak­­mörk­un­­um.

Sund­laugar og lík­­ams­­rækt­­­ar­­stöðvar eru lok­að­­ar. Sviðs­listum og kvik­mynda­húsum hefur verið gert að hætta starf­­semi á ný. Íþrótta­­starf er söm­u­­leiðis óheim­ilt, bæði hjá börnum og full­orðn­­­um.

Barir og skemmti­­staðir eru nú lok­að­ir, en veit­inga­­staðir mega vera opnir til kl. 22 á kvöld­in, með tak­­mörk­un­­um.

Auglýsing

Marg­vís­­leg starf­­semi í sam­fé­lag­inu hefur verið gert að stöðva, en þó reyndar ekki starf­­semi hár­greiðslu­­stofa og snyrt­i­­stofa og önnur álíka þjón­usta.

Grunn­­skól­um, fram­halds­­­skólum og háskólum er lokað fram að páska­fríi og unnið er að því að útfæra starf­semi þeirra í fram­hald­inu. Leik­­skólar eru áfram opn­­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent