Atvinnuleysi óvænt óbreytt milli mánaða en langtímaatvinnuleysi enn mikið

Fjöldi þeirra sem hafa verið án vinnu í ár eða meira er 116 prósent hærri nú en hann var áður en kórónuveirufaraldurinn skall á, þrátt fyrir að atvinnuleysið sé nú nánast það sama. Rúmlega 40 prósent atvinnulausra eru erlendir atvinnuleitendur.

Ferðaþjónusta hefur end­ur­heimt um helm­ing þeirra starfa sem töp­uð­ust í kórónuveirufaraldrinum samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands.
Ferðaþjónusta hefur end­ur­heimt um helm­ing þeirra starfa sem töp­uð­ust í kórónuveirufaraldrinum samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands.
Auglýsing

Skráð atvinnu­leysi mæld­ist 4,9 pró­sent í nóv­em­ber mán­uði sem er sama hlut­fall og í mán­uð­inum á und­an. Það þykir heldur óvænt þar sem hefð­bundnar árs­tíða­sveiflur leiða yfir­leitt til þess að atvinnu­leysi auk­ist milli októ­ber og nóv­em­ber og Vinnu­mála­stofnun hafði spáð því að það myndi aukast lít­il­lega undir lok árs.

Í nýbirtri mán­aða­skýrslu stofn­un­ar­innar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi kemur fram að aukin eft­ir­spurn eftir starfs­fólki úr mörgum geirum skýri þessa þróun meðal ann­ars. „Þannig er fjölgun atvinnu­lausra í bygg­ing­ar­greinum minni í nóv­em­ber en áður auk þess sem fækkun atvinnu­lausra í verslun er í stað fjölg­unar almennt í nóv­em­ber Einnig eru breyt­ingar á fjölda atvinnu­lausra í ferða­þjón­ustu­greinum nú í nóv­em­ber yfir­leitt til fækk­unar í stað fjölg­unar almennt í mán­uð­in­um.“

Þrátt fyrir að atvinnu­leysið hafi mælst á svip­uðum slóðum og það var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á síð­ustu þrjá mán­uði þá er vert að minna á að atvinnu­leysi var sögu­lega nokkuð hátt í byrjun síð­asta árs. Í febr­úar 2020 var atvinnu­leysið komið í fimm pró­sent og hafði ekki mælst hærra síðan í apríl 2012. 

Yfir fjögur þús­und manns án atvinnu í meira en ár

Lang­tíma­at­vinnu­lausum fækkað lítið milli mán­aða og alls höfðu 4.083 verið án atvinnu í ár eða lengur í lok nóv­em­ber. Það þýðir að af þeim 10.155 sem  voru atvinnu­lausir á þeim tíma höfðu 40 pró­sent verið það í meira en tólf mán­uði. Það hlut­fall var 21 pró­sent í febr­úar á síð­asta ári. Fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra er því 116 pró­sent meiri en hann var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á.

Auglýsing
Alls voru 4.175 erlendir atvinn­u­­leit­endur án atvinnu í lok nóv­em­ber og þeim fjölgað um 106 milli mán­aða. Það þýðir að 41 pró­­sent allra atvinn­u­­lausra voru erlendir atvinn­u­­leit­end­­ur, sem er nán­­ast sama hlut­­fall og var í febr­­úar 2020. 

Atvinn­u­­leysið er mest á Suð­­ur­­nesjum nú, eða 9,5 pró­­sent, en atvinnustigið þar er mjög háð því að mikið sé að gera í ferða­­þjón­­ustu vegna nálægðar við Kefla­vík­­­ur­flug­­völl. Atvinn­u­­leysið hefur hríð­­fallið þar frá því í byrjun árs þegar það var 23,3 pró­­sent og er nú hlut­­falls­­lega það sama og það var fyrir kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn. 

Ráðn­inga­styrkir að renna út

Sem stendur eru enn í gildi svo­­­­­kall­aðir ráðn­­­­­inga­­­­­styrkir, sem greiddir eru út í tengslum við atvinn­u­átakið Hefjum störf. Það snýst um að rík­­­­­is­­­­­sjóður greiði þorra launa nýrra starfs­­­­­manna fyr­ir­tækja tíma­bund­ið, en þeir renna flestir út á næstu vik­­­­­um. 

­Sam­­­kvæmt mæla­­­­borði Vinn­u­­­­mála­­­­stofn­unar hafa 7.393 ráðn­­­­ingar átt sér stað á grund­velli átaks­ins frá 1. mars, en um 250 ráðn­­­ingar voru gerðar undir hatti þess í nóv­em­ber. 

Mik­ill fjöldi ráðn­­ing­­ar­­styrkja rennur út á síð­­asta fjórð­ungi árs­ins. Í frétt sem birt­ist á vef RÚV í síð­asta mán­uði kom fram að þeim sem þegar hafa runnið út á samn­ingi hafi aðeins um tutt­ugu til þrjá­­tíu pró­­sent snúið aftur á atvinn­u­­leys­is­­skrá. Haft var eftir Unni Sverr­is­dótt­­ur, for­­stjóri Vinn­u­­mála­­stofn­un­­ar, að það væri betri árangur en búist hafði verið við.

Í Pen­inga­­málum Seðla­banka Íslands, sem birt voru undir lok síð­asta mán­að­ar, sagði að óvíst væri að hve miklu leyti ráðn­­ing­­ar­­sam­­böndum sem byggj­­ast á styrkjum verði við­haldið en á móti vegi mikil ráðn­­ing­­ar­á­­form fyr­ir­tækja og skortur á starfs­­fólki. „Það gæti hægt á hjöðnun atvinn­u­­leysis eða það jafn­­vel auk­ist tíma­bundið ef margir koma aftur inn á skrá þar sem pörun leit­enda og nýrra starfa getur tekið tíma.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent