Bankamenn vilja styttri vinnuviku, eru með hæstu reglulegu launin

9954283464_0056325184_z-1.jpg
Auglýsing

Starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa áhuga á því að semja um styttri vinnu­viku í kom­andi kjara­samn­ingum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins. Vel komi til greina að krefj­ast þess að hver vinnu­dagur verði styttur um hálf­tíma, en sam­kvæmt gild­andi kjara­samn­ingi er hinn almenni dag­vinnu­tími frá klukkan 9 til 17. Þetta seg­ir Frið­bert Trausta­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja (SS­F), í Morg­un­blað­inu í dag.

Frið­bert bendir á að margt ungt fólk, með heim­ili og börn, starfi nú hjá bönkum lands­ins og því sé rétt að aðlaga vinnu­tím­ann að heim­il­is­líf­inu. Mikil umræða hafi sprottið upp um málið á fundi trún­að­ar­manna og for­svars­manna aðild­ar­fé­laga SSF fyrir ára­mót. Í Morg­un­blað­inu seg­ir: "Voru fund­ar­menn almennt sam­mála um mik­il­vægi þess að stytta vinnu­vik­una. Hann nefnir jafn­framt að brýnt sé að setja ákveð­inn ramma utan um fast­launa­samn­inga, svo sem með því að setja ákveðið hámark á tíma unna í yfir­vinnu og láta þá eiga við um virka daga "þannig að ekki sé verið að þvinga fólk til að vinna um helgar eða á kvöldin og um næt­ur".­Kröfu­gerð hefur ekki verið mótuð fyrir við­ræð­urnar en Frið­bert segir að helst hafi verið rætt um að fara svo­kall­aða bland­aða leið í launa­hækk­un­um, þ.e. bæði krónu­tölu- og pró­sentu­hækk­an­ir. Ekki sé tíma­bært að nefna neinar tölur í því sam­band­i."

Launin 50 pró­sent yfir með­al­tali



Sam­kvæmt nýj­ustu launa­könnun Hag­stofu Íslands eru reglu­leg laun full­vinn­andi ein­stak­linga hæst í fjár­mála­geir­an­um. Árið 2013 voru þau 653 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali. Þau höfðu þá hækkað um 5,7 pró­sent milli ára. ­Reglu­leg mán­að­ar­laun full­vinn­andi launa­manna á íslenskum vinnu­mark­aði voru 436 þús­und krónur sama ár.

Það þýðir að fólk í fjár­mála­geir­anum var með 50 pró­sent hærri laun en með­al­tals­launa­mað­ur­inn á íslenskum vinnu­mark­aði árið 2013. Þó er vert að taka fram að launa­dreif­ing var mest innan þessa geira.

Auglýsing

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None