Bankar hafa lánað meira í óverðtryggð lán á rúmu ári en þeir gerðu sjö árin á undan

Tilfærsla þjóðarinnar úr verðtryggðum húsnæðislánum yfir í óverðtryggð heldur áfram. Alls tóku heimilin 136 milljarða króna í óverðtryggt húsnæðislán umfram uppgreiðslur og umframgreiðslur í apríl. Samhliða varð mesta hækkun á húsnæðisverði frá 2007.

Þjóðin færir sig skipulega úr verðtryggðum lánum yfir í óverðtryggð lán þegar hún fjármagnar húsnæðiskaup sín.
Þjóðin færir sig skipulega úr verðtryggðum lánum yfir í óverðtryggð lán þegar hún fjármagnar húsnæðiskaup sín.
Auglýsing

Ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán banka til heim­ila lands­ins námu 135,5 millj­örðum króna á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2021. Frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér­lendis í mars í fyrra, þegar vextir tóku að hríð­ar­lækka sem leiddu til stór­auk­innar lán­töku til hús­næð­is­kaupa, hafa heim­ili lands­ins tekið 495,8 millj­arða króna í ný óverð­tryggð lán hjá Lands­banka, Íslands­banka og Arion banka að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðsl­u­m. 

Það er rúm­lega 98 millj­örðum krónum meira en heim­ili lands­ins tóku í óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá bönk­unum þremur frá byrjun árs 2013 og til loka febr­úar 2020, eða á sjö árum og tveimur mán­uð­um. Á þeim tíma tóku heim­ilin alls 397,2 millj­arða króna í óverð­tryggð lán til að kaupa sér hús­næði.

Þetta kemur fram í nýbirtum hag­tölum frá Seðla­banka Íslands um banka­kerf­ið.

Frá mars í fyrra og út apríl í ár hafa útlán verð­tryggðra hús­næð­is­lána, að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðsl­um, verið nei­kvæð um næstum 80 millj­arða króna.

Mesta hækkun á verði síðan 2007

Þessi útlána­aukn­ing á rætur sínar að rekja til mik­illar lækk­unar á stýri­vöxt­um, en þeir fóru lægst í 0,75 pró­sent áður en þeir voru hækk­aðir í fyrsta sinn frá árinu 2018 fyrr í þessum mán­uði upp í eitt pró­sent. Fyrir vikið hafa boð­ist óverð­tryggð lán á kjörum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi. Lægstu breyti­legu óverð­tryggðu vextir sem í boði eru á grunn­láni – fyrir 70 pró­sent af virði keyptrar eignar – eru nú 3,3 pró­sent hjá Lands­bank­an­um. Í árferði þar sem verð­bólga mælist 4,6 pró­sent blasir við að það eru afar góð kjör í íslensku lána­sam­hengi, sér­stak­lega í sam­an­burði við verð­tryggð lán, þar sem lánið hækkar ef verð­bólga er til stað­ar. 

Auglýsing
Einn þeirra þátta sem keyrir upp verð­bólgu er hærra hús­næð­is­verð, en verð á fast­eignum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði til að mynda um tæp 14 pró­sent milli apr­íl­mán­aða 2020 og 2021. Það er mesta 12 mán­aða hækkun sem mæld hefur verið á svæð­inu síðan á góð­ær­is­ár­inu 2007.

Hæg­ari hækkun og hærri vextir

Bank­arnir reikna með að hús­næð­is­verð haldi áfram að hækka í nán­ustu fram­tíð. Í nýrri þjóð­hags­spá Lands­banka Íslands er gert ráð fyrir að það hækki um 10,5 pró­sent á þessu ári en að það hægi svo á hækk­una­takt­inum á næstu árum. Bank­inn reiknar sömu­leiðis með því að vextir muni hækka nokkuð skarpt á næstu árum og verði komnir upp í 2,75 pró­sent í lok árs 2023. 

Í þjóð­hags­spá Íslands­banka er gert ráð fyrir því að hús­næð­is­verð hækki um 11,3 pró­sent á árinu 2021 og að stýri­vextir verði komnir yfir þrjú pró­sent í árs­lok 2023.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent