Bankarnir eiga enn í tuttugu fyrirtækjum - Þetta eru fyrirtækin

bankar_island.jpg
Auglýsing

Þrátt fyrir að nær sjö ár séu liðin frá fjár­mála­hrun­inu þá eiga stóru við­skipta­bank­arnir þrír, Íslands­banki, Arion banki og Lands­bank­inn, enn tutt­ugu fyr­ir­tæki í óskyldum rekstri. Sam­kvæmt lögum er bönk­unum aðeins heim­ilt að stunda aðra starf­semi tíma­bundið en það er í höndum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að veita tíma­bundna tólf mán­aða und­an­þágu­heim­ild fyrir eign­ar­hald­inu. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag þar sem birtur er listi yfir þau félög sem bank­arnir þrír eiga enn að meira en 10 pró­sent hluta eða öllu leyti. Flestar eign­irnar eru á vef­síðum bank­anna sagðar til sölu. List­ann má sjá hér að neð­an.

Arion banki

Landey ehf. (ný­bygg­ing­ar/lóð­ir) 100%

Auglýsing


BG12 slhf. (Bakka­vör Group Ltd.) 62%



Farice (Tveir sæstrengir) 39,3%



Sím­inn hf. 38,3%



Klakki ehf. (Lýs­ing/Bakka­vör) 31,8%



EAB1 ehf. (Refresco Ger­ber) 30%



Stoðir hf. (Refresco Ger­ber) 16,3%



SV IV slhf. (Skelj­ung­ur/PF Magn) 12,91%

Lands­bank­inn

Iceland Construct­ion hf. (áður Ístak) 100%



Fast­eigna­fé­lagið Borg ehf. 31,25%



Hest­hólar ehf. (fast­eigna­fé­lag) 26,4%



Eyrir Invest hf. (fjár­fest­inga­fé­lag) 23,3%



Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands svf. 20,76%



Stoðir hf. (fjár­fest­inga­fé­lag) 13,4%

Íslands­banki

Man­stron Properties Ltd. (fast­eign í Bret­landi) 100%



Geysir General Partner ehf. 100%



Geysir Green Invest­ment Fund slhf. 100%



Fergin (Frum­herji) 80%



Frum­tak GP ehf (rekstr­ar­að­ili Frum­taks) 19%



Nýr Norð­ur­turn (Norð­ur­turn í Kópa­vogi) 11,85%



Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins er rætt við Daða Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóra H.F. Verð­bréfa. Hann segir að það sé í raun óþol­andi hversu lítið sé ýtt á að bank­arnir losi sig við eignir sem eru í óskyldum rekstri. „Þeir hafa verið á und­an­þágu í mörg ár. Það er eins og menn séu að nýta sér þetta til hins ýtrasta,“ segir hann. Hann segir einnig það ekki vera hlut­verk banka að liggja á stórum eign­ar­hlutum í félögum að ástæðu­lausu. „Í mínum huga virð­ist sem hags­mun­irnir snú­ist helst um að búa til þókn­ana­tekjur hjá bönk­un­um. Þeir hafa fengið mörg góð til­boð í þessa hluti sem hafa ekki verið sam­þykkt. það lítur því út fyrir að þeir hafi verið að bíða eftir tæki­fær­inu til að skrá sjálfir hlut­ina á mark­að.“ Þetta myndi ábyggi­lega ekki leyfast í nángranna­lönd­um, segir Daði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None