Bankarnir þegar búnir að lána rúmlega fimm sinnum meira til fyrirtækja en allt árið í fyrra

Ný útlán banka til atvinnufyrirtækja hafa aukist mikið síðasta hálfa árið. Frá byrjun desember 2020 og fram til síðustu mánaðamóta lánuðu þeir fyrirtækjum næstum 50 milljarða króna umfram upp- og umframgreiðslur.

Mest hefur verið lánað til ýmiskonar þjónustustarfsemi það sem af er ári, nú þegar hömlum vegna COVID-19 hefur verið lyft í skrefum og Ísland stígið stór skref aftur til fyrra horfs.
Mest hefur verið lánað til ýmiskonar þjónustustarfsemi það sem af er ári, nú þegar hömlum vegna COVID-19 hefur verið lyft í skrefum og Ísland stígið stór skref aftur til fyrra horfs.
Auglýsing

Ný útlán banka, umfram upp­greiðslur og umfram­greiðsl­ur, til atvinnu­fyr­ir­tækja voru 42,7 millj­arðar króna á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins. Allt árið í fyrra lán­uðu kerf­is­lega mik­il­vægir bankar á Íslandi sam­tal fyr­ir­tækjum lands­ins 7,8 millj­arða króna nettó. Ný útlán á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2021 voru því rúm­lega fimm sinnum hærri upp­hæð en lánuð var nettó til fyr­ir­tækja allt árið í fyrra. 

Þetta má lesa út úr nýbirtum hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu íslenska banka­kerf­is­ins. 

Til sam­an­burðar var nettó heild­ar­um­fang nýrra útlána 105 millj­arðar króna árið 2019 og tæp­lega 209 millj­arðar króna árið 2018, þegar bank­arnir lán­uðu fyr­ir­tækjum lands­ins 27 sinnum meira en í fyrra.

Raunar teygir þessi við­snún­ingur í lánum til fyr­ir­tækja sig aðeins aft­ar, en til des­em­ber 2020. Þá lán­uðum bank­arnir nettó sjö millj­arða króna til atvinnu­fyr­ir­tækja líka sem þýðir að hina ell­efu mán­uði árs­ins 2020 lán­uðum þeir fyr­ir­tækj­unum 800 millj­ónir króna umfram það sem þau greiddu upp. 

Mik­ill sam­­dráttur í fyrra

Mik­ill vöxtur var í útlánum inn­­­­láns­­­­stofn­ana lands­ins á upp­gangs­tímum síð­­­­­­­ustu ára. Um er að ræða, að upp­­­i­­­­­stöðu, útlán sem Lands­­­­bank­inn, Íslands­­­­­­­banki, Arion banki og Kvika banki veita. 

Auglýsing
Árið 2013 voru ný veitt útlán til atvinn­u­­­­fyr­ir­tækja 79,2 millj­­­­arðar króna. Ári síðar voru þeir 30 pró­­­­sent meiri og á árinu 2015 juk­ust þau um 52 pró­­­­sent. Ári síðar var heild­­­­ar­um­­­­fang nýrra útlána komið í 196,5 millj­­­­arða króna og hélst á því róli út árið 2018, þegar það topp­aði í 208,7 millj­­­­örðum króna.

Síðan þá hefur verið umtals­verður sam­­­­dráttur í nýjum útlán­­­­um. Árið 2019 voru þau 104,8 millj­­­­arðar króna og nán­­­­ast helm­ing­uð­ust á milli ára. 

Í fyrra varð síðan orðið eðl­is­breyt­ing og bank­­­­arnir grein­i­­­­lega haldið að sér höndum í útlánum í þeirri heimskreppu sem nú gengur yfir. Vís­bend­ingar eru um að þetta ástand sé að lag­ast.

Bank­arnir áttu að leika lyk­il­hlut­verk í við­brögðum

Ein helsta aðgerðin sem rík­­is­­stjórnin kynnti til leiks í mars var að veita fyr­ir­greiðslu til að auð­velda við­­bót­­ar­lán lána­­stofn­ana til fyr­ir­tækja. Þetta átti að gera þannig að ríkið semdi við Seðla­­banka Íslands um að færa lána­­stofn­unum aukin úrræði til að veita við­­bót­­ar­­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja, í formi brú­­ar­lána, sem orðið hefðu fyrir veru­­legu tekju­tapi vegna yfir­­stand­andi aðstæðna. Seðla­­bank­inn myndi þannig veita ábyrgðir til lána­­stofn­ana sem þær nýta til að veita við­­bót­­ar­lán upp að um 70 millj­­arða króna. 

Aðal­­við­­skipta­­bankar fyr­ir­tækja áttu að veita þessa fyr­ir­greiðslu og aðgerðin var í heild metin á um 80 millj­­arða króna að teknu til­­liti til auk­innar útlána­­getu banka vegna lækk­­unar á banka­skatti, sem átti að aukast um tæp­­lega 11 millj­­arða króna. Ríkið reikn­aði sín áhrif af þessu á 35 millj­­arða króna.

þetta úrræði hefur ekki verið nýtt sem neinu nem­ur. Alls hafa verið veitt átta brú­ar­lán fyrir sam­tals 2,7 millj­arða króna. 

Svokölluð stuðn­­­ings­lán, einnig kölluð sér­­­­­stök lán til lít­illa fyr­ir­tækja, voru kynnt í aðgerð­­ar­­pakka rík­is­stjórn­ar­innar númer tvö, sem kynntur var til leiks í apríl 2020. Til að telj­­­ast til slíkra fyr­ir­tækja þurfti að vera með tekjur undir 500 millj­­­ónum króna á ári. Lán­in, sem njóta 100 pró­­­sent rík­­­is­á­­­byrgð­­­ar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­­­sent tekju­­­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­­­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks mán­uði áður.

Lánin til fyr­ir­tækj­anna átti að verða hægt að sækja um með ein­­­földum hætti á Island.is en þau nema að hámarki sex millj­­­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­­­ar­um­­­fang lán­anna átti að geta orðið allt að 28 millj­­­arðar króna í heild, að mati stjórn­­­­­valda. 

Enn sem komið er hafa 970 aðilar fengið alls 9,6 millj­arða króna í stuðn­ings­lán. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent