Bankasýsla ríkisins ekki lögð niður um áramót

j.n.gunnar.j.nsson_.jpg
Auglýsing

Engin ákvörðun hefur verið tekin um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag þeirra verk­efna sem nú eru á borði Banka­sýslu rík­is­ins. Að óbreyttu verður Banka­sýslan ekki lögð niður um ára­mót líkt og frum­varp sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram á síð­asta þingi gerði ráð fyr­ir. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varp  til laga um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum 1. apríl síð­ast­lið­inn. Sam­kvæmt frum­varp­inu átti að leggja nið­ur­ ­Banka­sýslu rík­is­ins verður og færa eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum undir fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Hann átti í einnig að setja sér­staka eig­anda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjaf­ar­nefnd, án til­nefn­inga, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra eign­ar­hluta.

Í nótt var til­kynnt um að íslenska ríkið muni eign­ast allt hlutafé í Íslands­banka ef nauða­samn­ingar Glitnis verða sam­þykktir fyrir ára­mót. Þá mun íslenska ríkið eiga tvo af þremur stóru við­skipta­bönkum lands­ins. Eins og lögin eru núna mun Banka­sýsla rík­is­ins fara með það eign­ar­hald og eftir atvikum und­ir­búa sölu bank­anna.

Auglýsing

Átti ekki að fá krónu á fjár­lögum



Sú áætlun rík­is­stjórn­ar­innar að leggja niður Banka­sýsl­una fékk stoð í því að í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 er ekki gert ráð fyrir því að stofn­unin fái eina krónu frá rík­is­sjóði. Frum­varpið um lög um með­ferð og sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum náði þó ekki fram að ganga á síð­asta þingi og er ekki á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir yfir­stand­andi þing­vet­ur.

Banka­sýslan hefur hins vegar gert ráð fyrir því að hún muni sjá um sölu á eign­ar­hlutnum í Lands­bank­anum sem til stendur að selja. Það kom m.a. fram í bréfi sem stofn­un­in sendi Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í sept­em­ber, þess efnis að stofn­unin myndi skila af sér til­lögu til ráð­herr­ans um sölu­með­ferð á 30 pró­senta eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum fyrir 31. jan­úar á næsta ári. Í síð­ustu viku aug­lýsti Banka­sýslan svo eftir starfs­fólki í verk­efni tengd fyr­ir­hug­aðri sölu­með­ferð rík­is­ins á eign­ar­hlut í Lands­bank­anum hf. Banka­sýslan óskaði eftir sér­fræð­ingi í eigna­um­sýslu og lög­fræð­ingi og hyggst ráða tvo til þrjá ein­stak­linga í tíma­bundin verk­efni.

Íslands­banki á leið í fang rík­is­ins



Nú gæti bæst veru­lega við verk­efni Banka­sýsl­unn­ar. Í nótt var til­kynnt að Glitnir ætli að láta ríkið hafa allt hlutafé í Íslands­banka í tengslum við stöð­ug­leika­fram­lag sitt. Gangi þau áform eftir mun ríkið eiga tvo stóra við­skipta­banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann. Bjarni sagði við mbl.is í dag að það sé ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka og Lands­bank­an­um. Því má búast við að ríkið muni selja Íslands­banka ef það eign­ast hann.

Kjarn­inn beindi þeirri spurn­ingu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins hvort, og þá hvenær, ríkið ætl­aði sér að selja Íslands­banka. Í svari þess seg­ir: "Til­lögur hóps kröfu­hafa Glitnis hf. um stöð­ug­leika­fram­lag Glitnis til rík­is­ins í tengslum við heild­stæða áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta fela ekki í sér end­an­lega ákvörðun stjórn­valda. Af þeim sökum er ótíma­bært að svara nokkru efn­is­lega um til­lögur þær sem borist hafa stjórn­völd­um."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None