Bann við vinstri beygju tekið til skoðunar en það hefði aukið umferð á öðrum stöðum

Horft er til þess að mislæg lausn verði gerð fyrir vinstri beygjur af Reykjanesbraut inn á Bústaðaveg, í tillögum sem Vegagerðin hefur unnið í samstarfi við borgina. Hugmynd um að banna vinstri beygju inn Bústaðaveg var líka skoðuð.

Þegar samgöngusáttmálinn var settur saman árið 2019 var stefnt á að hafa breytingar á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar klár árið 2021. Það varð ekki, en nú hillir undir lausn.
Þegar samgöngusáttmálinn var settur saman árið 2019 var stefnt á að hafa breytingar á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar klár árið 2021. Það varð ekki, en nú hillir undir lausn.
Auglýsing

Bann við vinstri beygju af Reykja­nes­braut og inn á Bústaða­veg er á meðal þess sem Vega­gerðin hefur verið með til skoð­unar varð­andi útfærslu gatna­móta þar, en sú lausn að breyttum gatna­mótum hefur ekki orðið ofan á.

Vega­gerðin hyggst fara með til­lögur að skipu­lagi vegna gatna­mót­anna fyrir skipu­lags­ráð Reykja­vík­ur­borgar í haust, en svæðið í heild verður skipu­lagt með fram­tíð­ar­legu Borg­ar­línu í huga.

Bryn­dís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur og svæð­is­stjóri Vega­gerð­ar­innar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir aðspurð við Kjarn­ann að sá kostur að banna ein­fald­lega vinstri­beygj­una inn á Bústaða­veg og út af hon­um, sem bent hefur verið á að myndi um leið eyða þörf­inni fyrir hvoru tveggja mis­læg gatna­mót og umferð­ar­ljós á Reykja­nes­braut­inni, myndi auka umferð­ina á Soga­vegi, Rétt­ar­holts­vegi og í slauf­unum fyrir neðan Ártúns­brekk­una.

Lausnin myndi því í raun ekki sam­ræm­ast mark­miðum sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um greið­ari sam­göng­ur.

Auglýsing

Í til­lög­unum sem fara til borg­ar­innar er því horft til þess að umferð af Reykja­nes­braut inn á Bústaða­veg fari um mis­læga lausn í frjálsu flæði og umferð­ar­ljósin við Sprengisand heyri sög­unni til­.

„Við erum búin að vera í mjög góðu sam­starfi við borg­ina núna síð­asta árið við að leysa þessi gatna­mót, en þar spilar inn í lota þrjú í Borg­ar­línu, sem fer frá Mjódd og inn í Voga­byggð og svo áfram niður á BSÍ. Síð­ast­lið­inn vetur fór í að útfæra Reykja­nes­braut­ina og Borg­ar­lín­una í þessu þver­sniði og sjá í gegnum hvernig við tengjum okkur inn í stöð­ina í Voga­byggð og upp á Stekkj­ar­bakk­ann, þannig að það verði hægt að aka Borg­ar­línu inn í Mjódd,“ sagði Bryn­dís í sam­tali við Kjarn­ann á dög­un­um.

Þurfi að tryggja flæði allra sam­göngu­máta

„Ég vona að fljót­lega eftir sum­ar­frí getum við kynnt þær útfærslur sem hafa verið til skoð­unar fyrir skipu­lags­ráði borg­ar­inn­ar. Fjöl­margar lausnir hafa verið skoð­að­ar, sem snúa að útfærslu Reykja­nes­braut­ar, gatna­mót­unum við Bústaða­veg og Borg­ar­línu á þessu svæð­i,“ segir Bryn­dís og bætir við að lausnir sam­göngu­mann­virkja á svæð­inu hafi reynst nokkur áskor­un.

„Við erum með dal­inn þarna alveg upp við sem er hverf­is­vernd­aður og svo er byggð hinumeg­in. Og allt stíga­kerf­ið. Það er verið að reyna að koma þessu hag­an­lega fyr­ir,“ segir Bryn­dís einnig.

„Þetta er búið að vera mjög áhuga­vert verk­efni, að reyna að koma fyrir lausnum, af því að þarna sam­einar þú allar þrjá sam­göngu­mát­ana. Þú ert með bíla­um­ferð­ina, þú ert með Borg­ar­línu og svo ertu með öfl­ugt hjóla­stíga­kerfi þarna og þú þarft að tryggja öllum pláss og flæði.

Það verður spenn­andi þegar við getum farið að sýna þetta í haust,“ segir Bryn­dís.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent