Benedikt Einarsson: Á ekki í Matorku, Borgun né Thorsil

matorkanytt.jpg
Auglýsing

Bene­dikt Ein­ars­son, lög­maður og fjár­fest­ir, seg­ist ekki eiga neinn eign­ar­hlut, hvorki beint né óbeint, í Matorku ehf. eða sviss­neska félag­inu Matorku Hold­ing AG. Í tölvu­pósti sem Bene­dikt sendi Kjarn­anum seg­ir: „Ég sit í stjórn Matorku Hold­ing AG fyrir hönd hlut­hafa sem heitir P126 ehf., en það félag er að fullu í eigu föður míns, Ein­ars Sveins­son­ar, í gegnum erlent eign­ar­halds­fé­lag hans. P126 á tæp­lega 5% í Matorku og því ekki meiri­hluta­eig­andi (Mig minnir jafn­framt að hlutur Eiríks Svav­ars­sonar og hans konu sé undir 20%). Ég er ekki held­ur, hvorki beint né óbeint, hlut­hafi í Borgun eða Thorsil.“

Í umfjöllun Kast­ljóss, sem Kjarn­inn sagði frá í gær­kvöldi, kom fram að helstu eig­end­ur Matorku væru þeir Bene­dikt Ein­ars­son og Eiríkur Svav­ars­son. Þar segir einnig: „Bene­dikt er frændi fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar og fyrrum við­skipta­fé­lagi hans á árunum fyrir hrun. Bene­dikt er einnig hlut­hafi í Thorsil, sem nýverið gerði fjár­fest­inga­samn­ing við stjórn­völd vegna kís­il­iðju á Reykja­nesi og svo á hann hlut í félag­inu sem keypti Borgun af Lands­bank­anum nýver­ið.“ Þessu eign­ar­haldi neitar Bene­dikt alfar­ið.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr fyr­ir­tækja­skrá er eig­andi P-126 ehf. kýp­verskt félag sem heitir Chara­m­ino Hold­ings Limited. Það félag er á meðal eig­enda Borg­unar og Thorsil og er skráð til heim­ilis á sama stað og Bene­dikt Ein­ars­son. Hann, eða með­eig­andi hans á lög­manns­stof­unni Atl­antik legal services ehf., koma fram fyrir hönd félags­ins og und­ir­rita sam­inga fyrir það. Ekki er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um end­an­legan eig­anda Chara­m­ino Hold­ings Limited í fyr­ir­tækja­skrá en sam­kvæmt tölvu­bréfi Bene­dikts er Einar Sveins­son, faðir hans, eini eig­andi þess.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None