Birgitta: Fólk styður Pírata vegna þess að það vill losna við frændhygli, spillingu og óskilvirkni

10054271513_96440ac9ca_k-1.jpg
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, einn þriggja þing­manna Pírata, segir að því fylgi óraun­veru­leika­til­finn­ing að sjá fylgi flokks­ins mæl­ast í þeim hæðum sem það hefur gert í und­an­förnum skoð­ana­könn­un­um. Gallup birti í gær nýja könnun sem sýndi að fylgi við Pírata er 32 pró­sent og flokk­ur­inn mælist með lang­mest fylgi allra stjórn­mála­flokka í dag. Þetta var fjórði mán­uð­ur­inn í röð sem Píratar mæl­ast stærstir í könn­unum Gallup. Allan þann tíma hefur fylgi flokks­ins mælst yfir 30 pró­sent­um. Sú mikla fylg­is­aukn­ing sem Píratar eru að upp­lifa í dag er ein­stök í Íslands­sög­unni.

Í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar í dag sagð­ist Birgitta vera þakk­lát fyrir traust­ið. „Við vonum bara að rík­is­stjórnin og aðrir flokkar hlusti eftir því sem fólk er að kalla eftir eð því að lýsa yfir stuðn­ingi við Pírata.“

Aðspurð um hvað það sé sem fólkið sé að kalla eftir sagði Birgitta það vera grund­valll­ar­breyt­ingu á lösk­uðu kerfi. Hér væri frænd­hygli, spill­ing og óskil­virkni við lýði og engu skipti hver væri við völd á meðan að þessir þættir væru inn­byggðir í kerf­ið. Það þyrfti að breyta þeim kerfum sem eiga að þjóna almenn­ingi en virð­ast ekki vera að gera það.

Auglýsing

Allir aðrir í til­vistakreppu



Í könnun Gallups í gær kom fram að 36 pró­sent aðspurðra styðja rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks nú þegar stutt er í að síð­ari hluti kjör­tíma­bils­ins hefj­ist. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina stóð í stað milli mán­aða. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með um 24 pró­sent fylgi sem er svipað og versta útkoma flokks­ins í sög­unni, en hann fékk 23,7 pró­sent í alþing­is­kosn­ing­unum 2009. Þegar kosið var fyrir tveimur árum hlaut flokk­ur­inn 26,7 pró­sent atkvæða.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með um tólf pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn heldur áfram að bæta lít­il­lega við sig á milli mán­aða en fylgi flokks­ins mæld­ist 8,9 pró­sent í maí, sem er með því lægsta sem það hefur nokkru sinni mælst. Björt fram­tíð heldur áfram að dala í vin­sældum hjá kjós­endum og fylgi flokks­ins mælist nú um fimm pró­sent. Vinstri grænir tapa líka fylgi á milli mán­aða og mæl­ast nú með um níu pró­sent fylgi.

Sam­fylk­ingin bætir við sig fylgi og um tólf pró­sent kjós­enda segja að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None