Birting álagningarskráa hefur fælingarmátt og þær ætti að birta mánaðarlega

10016471563_0af3028882_z.jpg
Auglýsing

Gunnar Th. Krist­jáns­son, stað­geng­ill skatt­rann­sókn­ar­stjóra, telur að fjölga mætti birt­ingum álagn­ing­ar­skráa hjá rík­is­skatt­stjóra og hafa þær mán­að­ar­leg­ar. Nú birt­ast þær árlega. Hann segir að hvernig sem á það sé litið felist fæl­ing­ar­máttur í að birta skrárnar opin­ber­lega. "Ann­ars væri eng­inn til­gangur í birt­ing­unn­i." Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu.

Gunnar segir að fjöldi ábend­inga ber­ist emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fyrstu dag­ana og vik­urnar eftir að álagn­ing­ar­skrárnar eru birt­ar. Allur gangur sé þó á því hvort þær eigi við rök að styðj­ast. ­Stein­þór Har­alds­son, stað­geng­ill rík­is­skatt­stjóra, segir emb­ættið ekki hafa skoðun á því hvort birta eigi upp­lýs­ing­arnar og að hann hafi ekki for­sendur til að meta hvort birt­ing þeirra hafi fæl­ing­ar­mátt. "En auð­vitað getur maður ímyndað sér það að fólk vilji ekki láta sjá ein­hvern núll tax á opin­berum vett­vang­i."

Í Frétta­blað­inu er einnig greint frá norskri rann­sókn sem sýndi að skatt­skil þar í landi hafi batnað um þrjú pró­sent eftir að upp­lýs­ingar um skatt­greiðslur ein­stak­linga urðu aðgengi­legar á net­inu árið 2001. Áður hafði birt­ing þeirra verið með svip­uðu sniði og hér­lend­is.

Auglýsing

Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks styður bann við birt­ingu



Deilur um aðgang almenn­ings að álagn­inga­skrám skatt­stjóra spretta upp árlega hér­lend­is. Á síð­asta þingi lögðu tveir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Sig­ríður Á. And­er­sen og Birgir Ármanns­son, fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um tekju­skatt sem felur í sér að álagn­ing­ar­skrárnar verði ekki lengur lagðar fram. Sig­ríður sagði í sam­tali við RÚV í vik­unni að hún telji "að almenn­ingur ætti að verja tíma sínum í eitt­hvað skemmti­legra og þarfara en að hnýs­ast gegnum skrá­argatið til ann­arra manna“.

Frum­varp Sig­ríðar og Birgis náði ekki fram að ganga á síð­asta þingi en hún seg­ist ætla að leggja það aftur fram á haust­þingi og að hún hafi stuðn­ing þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks í mál­inu.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna og fyrrum fjár­mála­ráð­herra, sagði í sömu fréttum RÚV að hann væri ósam­mála þess­ari nálg­un. „Ég tel að það eigi ekk­ert að tak­marka aðgengi að þeim. Þetta séu upp­lýs­ingar sem eðli­legt sé að séu opin­ber­ar. Það hafi mikið aðhalds­gildi og sé sjálf­sagt að hægt sé að bera saman hópa," sagði Stein­grím­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None