Bjarni vill skoða hvort ríkið eigi bótakröfu á slitabú Kaupþings eftir Al-Thani dóminn

15084010837_5e69fc5c02_z.jpg
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, vill skoða hvort ríkið eigi mögu­lega bóta­kröfu á slitabú Kaup­þings í kjöl­far dóms Hæsta­réttar síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Seðla­banki Íslands lán­aði Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán skömmu eftir að sá Al Thani snún­ing­ur­inn, sem stjórn­endur Kaup­þings hafa nú verið dæmdir í fang­elsi fyrir að fram­kvæma, var gerð­ur. Tap íslenskra skatt­greið­enda af þess­ari lán­veit­ingu var um 35 millj­arðar króna.Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag.

Í mál­inu vor­u ­Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafs­son, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, allir dæmdir sekir í. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, Ólafur og Magn­ús ­fjögur og hálft ár.

Ræddu um upp­töku að sím­tali Geirs og Dav­íðs



Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, spurði Bjarna út í dóm Hæsta­réttar og lánið sem Seðla­bank­inn veitti Kaup­þingi. Hann spurði sér­stak­lega hvort ekki væri ástæða til að birta umdeilt sím­tal milli Geirs H. Haar­de, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Dav­íðs Odds­son­ar, þáver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­bank­ans, þar sem lán­veit­ingin til Kaup­þings ákveð­in.

Bjarni sagði að margir teldu að sú lán­veit­ing yrði ekki að fullu upp­lýst nema að sím­talið yrði birt. Bjarni væri hins vegar þeirrar skoð­unar að það væri hægt að spyrja ein­fald­lega alla þá sem komu að ákvörð­un­ar­tök­unni um hvað hafi valdið henni, og að veðin sem veitt hafi verið fyrir lán­inu á þeim tíma hafi þótt býsna góð. Stjórn­völd hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga íslensku efna­hags­kerfi.

Auglýsing

Guð­mundur benti á að búið væri að dæma menn­ina sem stjórn­uðu bank­anum sem fékk neyð­ar­lánið í fang­elsi fyrir það sem þeir voru að gera á sama tíma og Seðla­bank­inn lán­aði þeim. Ljóst væri að verk­lags­reglur bank­ans hefðu verið brotn­ar. Guð­mundur gaf ekki mikið fyrir þá málsvörn að allir hefðu verið að gera sitt besta og að dómur Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu væri dæmi um að það að gera sitt besta til að bjarga hlut­unum sé alls ekki nóg.

Bjarni sagði að önnur ríki, þar á meðal Banda­ríkin og Bret­land, hafi ekki látið stífar verk­lags­reglur þvæl­ast fyrir því í miðju banka­hrun­inu að taka réttar ákvarð­an­ir. Honum þyki það áleitn­ari spurn­ing, í ljósi þess sak­næmu hátt­semi sem dómur Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu lýs­ir, hvort ríkið eigi bóta­kröfu á slitabú Kaup­þings. Hann vill taka það til skoð­un­ar.

Orð­rétt sagði Bjarni: "Það sem mér finnst vera miklu áleitn­ari spurn­ing vegna nið­ur­stöðu Hæsta­réttar á síð­asta ári er sú spurn­ing hvort með þeim sak­næma hætti sem Hæsti­réttur hefur nú fjallað um hafi stjórn­völdum verið gefið við­bót­ar­til­efni til að koma bank­anum til bjargar sem gæti aftur leitt af sér mögu­lega bóta­kröfu rík­is­ins á hendur slita­bú­inu. Það er eitt­hvað sem ég held að við ættum að taka til skoð­un­ar."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None